Veldu dag­setn­ingu

Öðru­vísi jóla­da­ga­tal

Öðru­vísi jóla­da­ga­tal SOS Barna­þorp­anna

                                                              

SMELL­IÐ Á DAG­SETN­ING­UNA HÉR TIL VINSTRI TIL AÐ OPNA GLUGGA DAGS­INS.

 

Á hverj­um degi fram að jól­um verð­ur hægt að opna nýj­an glugga í Öðru­vísi jóla­da­ga­tali SOS Barna­þorp­anna. Í ár ætl­um við að ferð­ast um heim­inn og kynn­ast börn­um frá ýms­um lönd­um.Við ætl­um með­al ann­ars að heim­sækja Nepal, Ind­land, Tanz­an­íu og Víet­nam.

Hverj­um degi fylgja um­ræðupunkt­ar til að nem­end­ur geti rætt sam­an um efni dags­ins.

Sælla er að gefa en þiggja

Auk fræðsl­unn­ar er daga­tal­ið öðru­vísi að því leyt­inu til að í stað þess að fá litla gjöf eða súkkulaði­mola að laun­um hvetj­um við börn­in til að vinna létt verk­efni heima við, t.d. vaska upp, moka snjó, þurrka af og fá smá aur að laun­um. Kannski þurfa ná­grann­arn­ir ein­hverja að­stoð fyri jól­in og svo má líka safna dós­um eða halda tom­bólu.

Það er að sjálf­sögðu und­ir hverri fjöl­skyldu kom­ið hvort hún vilji taka þátt í söfn­un­inni. Öll fram­lög sem safn­ast í ár fara í nýtt fjöl­skyldu­efl­ing­ar­verk­efni SOS Barna­þorp­anna í Rú­anda. Til­gang­ur­inn með fjöl­skyldu­efl­ing­unni er að hjálpa sára­fá­tæk­um barna­fjöl­skyld­um að standa á eig­in fót­um og gera for­eldr­um kleift að mæta grunn­þörf­um barna sinna til að koma í veg fyr­ir að­skiln­að barna og for­eldra.

Framlögin má leggja inn á reikning verkefnisins:

130-26-050028, kt. 500289-2529 eða með Aur appinu í númer 123 858 6860 eða @SOS

Einnig er hægt að gefa framlag með því að smella á græna boxið hér fyrir neðan.

Gefa fram­lag fyr­ir Jóla­da­ga­tal
Efni fyr­ir kenn­ara 2024