SOS fjölskylduvinur

Framlagið margfaldast

Framlög SOS fjölskylduvina tuttugufaldast á verkefnasvæðum okkar. Það þýðir ekki að peningarnir sjálfir tuttugufaldist. Hver króna sem lögð er í verkefnið getur skapað um tuttugu króna samfélagslegan ávinning – meðal annars með auknum tekjum fjölskyldna, betri menntun barna og minni þörf fyrir aðstoð síðar. Það hef­ur svo já­kvæð keðju­áhrif á nærsam­fé­lag­ið og inn­viði þess. Þetta köll­um við félagslega arðsemi (social return of investment). Svona 20-faldast framlagið þitt! 

SOS á Íslandi fjármagnar fjölskylduverkefni í Eþíópíu, Malaví, Rúanda og Úganda.

Hér geta Fjölskylduvinir nálgast sögur, fréttir og upplýsingar um verkefnin okkar.

Fréttir og sögur fyrir SOS-fjölskylduvini

SOS fjölskylduvinur

SOS fjölskylduvinur

SOS-fjölskylduvinir styðja barnafjölskyldur í sárafátækt og koma í veg fyrir að börn verði vanrækt og yfirgefin. Við fylgjum foreldrunum út úr fátækt þangað til þeir standa á eigin fótum og geta séð fyrir börnum sínum. Þú ákveður styrktarupphæðina og færð reglulega uppýsingar um verkefnin sem við fjármögnum með þinu framlagi.

Foreldrarnir fá aðgengi að lánsfé, námskeið í fjármálalæsi, sparnaði, fjárhagsáætlunum og fyrirtækjarekstri, jákvæðu uppeldi, aðgengi að heilbrigðisþjónustu, öflugu stuðningsneti í nærumhverfinu og börnunum er tryggð menntun.

Mánaðarlegt framlag
Ég vil greiða með

Við virðum friðhelgi gesta okkar á vefnum og mikilvægi þess að fólk verndi persónulegar upplýsingar. Í persónuverndaryfirlýsingunni okkar kemur fram hvers vegna við öflum, notum og geymum persónuupplýsingar. Persónuverndaryfirlýsing kann að taka breytingum og hvetjum við þig því til þess að kíkja á hana með reglulegu millibili.