Svona tuttugufaldast framlagið þitt
Þegar þú gefur fjárframlög til góðgerðarmála verður til það sem kallað er félagsleg arðsemi af framlögunum þínum. Í skýrslunni 75 Years Of Impact sem gerð var í tilefni af 75 ára afmæli SOS Barnaþorpanna er þessi arðsemi reiknuð út af starfi samtakanna. Hún endurspeglar margföldunaráhrif framlags þíns.
SOS-fjölskylduvinir greiða mánaðarlegt framlag að eigin vali sem að meðaltali 20-faldast á verkefnasvæðunum okkar þar sem við styðjum foreldra út úr fátækt til sjálfbærni. Það þýðir ekki að peningarnir sjálfir tuttugufaldist. Hver króna sem lögð er í verkefnið getur skapað um tuttugu króna samfélagslegan ávinning – meðal annars með auknum tekjum fjölskyldna, betri menntun barna og minni þörf fyrir aðstoð síðar. Það hefur svo jákvæð keðjuáhrif á nærsamfélagið og innviði þess. Ávinninningurinn af stuðningi SOS fjölskylduvina er því afar mikill fyrir samfélagið á verkefnasvæðum okkar.
Fjölskylduhjálp SOS gengur út á að aðstoða sárafátækar barnafjölskyldur til sjálfbærni og sjálfstæðis, gera þeim kleift að mæta grunnþörfum barna sinna og stuðlar að menntun barnanna og foreldranna. Þessi verkefni fyrirbyggja að börn missi foreldraumsjón og verði umkomulaus. Þau fylgja fjölskyldum út úr sárafátækt svo þær geti staðið á eigin fótum. SOS á Íslandi fjármagnar fjölskylduhjálp í Eþíópíu, Malaví, Úganda og í Rúanda.
Þessi fjölskylda býr í Iteya í Eþíópíu og stendur nú á eigin fótum eftir að hafa komist út úr sárafátækt í gegnum verkefni SOS.
Hvað er félagsleg arðsemi?
Félagsleg arðsemi framlaga SOS fjölskylduvina er reiknuð með því að bera saman allan kostnað við verkefnin við þann ávinning sem þau skapa fyrir einstaklinga, fjölskyldur, samfélagið og hið opinbera. Í ávinninginn telst meðal annars aukin menntun barna, hærri tekjur foreldra, minni þörf á félagslegri aðstoð og sparnaður fyrir ríkið til lengri tíma.
Rannsóknir sýna s.s. að í fjölskylduhjálp SOS er félagslegur ávinningur að meðaltali tuttugufaldur. Það þýðir að fyrir hverja krónu sem Íslendingar leggja til fjölskyldueflingar, fær samfélagið til baka að meðaltali um tuttugu krónur í framtíðarávinning.
Framlagið er því ekki einungis hjálp í dag – heldur fjárfesting sem margfaldast í krafti betri lífsgæða barna og sterkari samfélaga til framtíðar.
SOS-fjölskylduvinur er tilvalin styrktarleið fyrir þá sem vilja láta raunverulega gott af sér leiða fyrir lægri fjárhæð en þær 4.500 krónur á mánuði sem SOS foreldrar greiða mánaðarlega með einu styrktarbarni eða SOS barnaþorpi.
Eva Ruza, velgjörðasendiherra SOS á Íslandi, heimsótti þessa fjölskyldu í Arba Minch í Eþíópíu sem hefur brotist út úr sárafátækt og stendur nú á eigin fótum.
Leiðin úr sárafátækt til sjálfbærni - Svona virkar fjölskylduhjálp SOS
Tekjuöflun og lítil fyrirtæki – stuðningur við að byggja upp reglulegar tekjur með eigin atvinnurekstri og tekjuskapandi verkefnum.
Sparnaður og fjármálalæsi – fjölskyldur fá þjálfun í sparnaði, lánum og betri fjármálastjórn.
Aðgangur að lánsfé – samstarf við sparnaðar- og lánasamtök gerir fjölskyldum kleift að fjármagna raunhæfar viðskiptahugmyndir.
Jákvætt uppeldi – foreldrar fá stuðning við samskipti, aga án ofbeldis og öruggt, hlýlegt uppeldisumhverfi.
Sterkari rödd barnanna – börn taka þátt í áætlunum fjölskyldunnar og fá tækifæri til að segja frá eigin þörfum og skoðunum.
Aðgangur að heilbrigðisþjónustu – fjölskyldum er hjálpað að komast inn í sjúkratryggingakerfi og tengjast nauðsynlegri þjónustu.
Öflugra stuðningsnet í nærumhverfinu – unnið er með skólum, sveitarfélagi og samfélagssamtökum svo stuðningurinn við fjölskyldurnar haldi áfram til lengri tíma.
SOS fjölskylduvinur
SOS fjölskylduvinur
SOS-fjölskylduvinir styðja barnafjölskyldur í sárafátækt og koma í veg fyrir að börn verði vanrækt og yfirgefin. Við fylgjum foreldrunum út úr fátækt þangað til þeir standa á eigin fótum og geta séð fyrir börnum sínum. Þú ákveður styrktarupphæðina og færð reglulega uppýsingar um verkefnin sem við fjármögnum með þinu framlagi.