
Hér geta SOS-fjölskylduvinir nálgast allar fréttir og upplýsingar um verkefni okkar. SOS-fjölskylduvinir eru þeir styrktaraðilar SOS Barnaþorpanna sem styrkja fjölskyldueflingu SOS. Fjölskylduefling SOS gengur út á að aðstoða sárafátækar barnafjölskyldur til sjálfbærni og sjálfstæðis, gera þeim kleift að mæta grunnþörfum barna sinna og stuðlar að menntun barnanna og foreldranna.
Þessi verkefni fyrirbyggja að börn missi foreldraumsjón. Skjólstæðingar okkar eru börn, ungmenni og foreldrar þeirra. SOS á Íslandi fjármagnar fjölskyldueflingu í Eþíópíu, Malaví, Úganda og í Rúanda.
Framlag þitt margfaldast
SOS-fjölskylduvinir greiða mánaðarlegt framlag að eigin vali sem 20-faldast á fátækustu verkefnasvæðunum okkar. Það má því segja að 1.500 króna framlag jafngildi 30 þúsund krónum. Ávinninningurinn af stuðningi við fjölskyldueflinguna er því afar mikill fyrir samfélagið.
Félagsleg arðsemi framlaga til fjölskyldueflingar SOS Barnaþorpanna er reiknuð með því að bera saman allan kostnað við verkefnin við þann ávinning sem þau skapa fyrir einstaklinga, fjölskyldur, samfélagið og hið opinbera. Í ávinninginn telst meðal annars aukin menntun barna, hærri tekjur fjölskyldna, minni þörf á félagslegri aðstoð og sparnaður fyrir ríkið til lengri tíma.
Rannsóknir sýna að í fjölskyldueflingu er félagslegur ávinningur allt að tuttugufaldur. Það þýðir að fyrir hverja krónu sem Íslendingar leggja til fjölskyldueflingar, fær samfélagið til baka að meðaltali um tuttugu krónur í framtíðarávinningi. Framlagið er því ekki einungis hjálp í dag – heldur fjárfesting sem margfaldast í krafti betri lífsgæða barna og sterkari samfélaga til framtíðar.