„Saumaði“ fjölskylduna út úr sárafátækt
Fasika ólst upp í tekjulítilli fjölskyldu með átta systkinum í litlu þorpi nálægt Lalibela í Amhara-héraði í Eþíópíu. Hún yfirgaf heimilið ung til að vinna í stað þess að ljúka skólagöngu en það átti eftir að reynast afdrifaríkt. 37 ára var hún orðin einstæð tveggja barna móðir í vonlítilli stöðu.
Fasika hafði sem ung kona flutt til Lalibela í leit að betra lífi. Þar hóf hún skólagöngu á ný og lærði byggingariðn með maka sínum. Saman eignuðust þau tvo syni, Abaram og Muluken, og um tíma virtist lífið stöðugt og björt framtíð blasti við fjölskyldunni.
Fasika ásamt eldri syni sínum.
Makinn lést og stöðugleikinn hrundi
En sá stöðugleiki brast árið 2021 þegar maki hennar Fasiku lést eftir alvarleg veikindi og hún stóð eftir ein með börnin sín og nær engar tekjur. Skyndilega varð Fasika eina fyrirvinna fjölskyldunnar.
Með takmarkaða menntun og ótraustan fjárhag barðist hún í bökkum við að mæta grunnþörfum barnanna. Árið 2023 hafði hafði hún misst dagvinnu sína og einu tekjur hennar komu frá óstöðugum hlutastörfum.
Mér fannst ég hjálparvana og ekki lengur þess virði að lifa. Ég hélt að heimurinn minn væri að hrynja. Fasika rifjar upp erfiðu tímana.
En skyndilega breyttist allt
En þá varð skyndilega viðsnúningur hjá Fasiku. SOS Barnaþorpin voru að setja á laggirnar fjölskylduhjálp á staðnum og Fasika uppfyllti skilyrði til þátttöku enda var staða fjölskyldunnar afar slæm.
Með þessu verkefni fékk Fasika þjálfun í fjárhagslegu læsi og fatasaumi og hún valdi að sérhæfa sig í klæðskeraiðn til þess að taka skref fram á við í lífinu. Allt breyttist hjá fjölskyldunni og Fasika rekur í dag litla saumastofu og eldri sonur hennar er farinn að læra klæðskerasaum hjá mömmu sinni.
Fatasaumur reyndist leið Fasiku og fjölskyldu hennar út úr sárafátækt til sjálfstæðis.
Hefur nú stöðugar tekjur og hjálpar öðrum
Í dag aflar Fasika stöðugra tekna með því að kaupa efni, sauma og selja fatnað og styðja þannig menntun barna sinna. Sjálfstraust hennar hefur vaxið, hún finnur til vonar á ný og er staðráðin í að tryggja velferð fjölskyldu sinnar og stækka reksturinn sinn.
Á árunum 2023 til 2025 náði Fasika meðal annars að
- stunda skipulagðan sparnað og safnað að jafnvirði 55 þúsund íslenskra króna. Þessi upphæð er mjög stór á eþíópískan mælikvarða.
- byggja upp öflugt lífsviðurværi sem styður börnin hennar og styrkir fjölskyldur í svipuðum aðstæðum.
Fasika hjálpar nú öðrum að skapa varanlegar og jákvæðar breytingar í samfélaginu.
SOS Barnaþorpin eru með nærri 600 svona verkefni víðsvegar um heiminn og eru fjögur þeirra á vegum SOS á Íslandi. Þau eru fjármögnuð með stuðningi SOS fjölskylduvina og Utanríkisráðuneytisins og er það liður í opinberri þróunarsamvinnu Íslands.
SOS fjölskylduvinur
SOS fjölskylduvinur
SOS-fjölskylduvinir koma í veg fyrir að börn verði vanrækt og yfirgefin. Sem SOS-fjölskylduvinur tekurðu fyrstu skrefin með fjölskyldum út úr sárafátækt svo þær getið staðið á eigin fótum og veitt börnunum bjarta framtíð. Þú ákveður styrktarupphæðina og færð reglulega uppýsingar um verkefnin sem við fjármögnum með þinu framlagi. Svona 20-faldast framlagið þitt!