Úr fátækt í fyrirtækisrekstur
Belaynesh er þriggja barna móðir sem býr í borginni Arba Minch í Eþíópíu. Fjölskyldan lifði að mestu á óreglulegum daglaunum eiginmannsins og tekjurnar dugðu sjaldan til að mæta grunnþörfum heimilisins. Sumir dagar voru betri en aðrir, en oft þurfti að taka erfiðar ákvarðanir um hvernig ráðstafa ætti litlum fjármunum. Skólabækur voru notaðar þar til síðasta blaðsíðan var fullskrifuð og nýir skólabúningar voru lúxus sem fjölskyldan hafði sjaldan efni á.
Fjárhagserfiðleikarnir höfðu einnig áhrif á félagslíf Belaynesh. Hún dró sig í hlé frá samfélaginu þar sem hún hafði hvorki tíma né peninga til að taka þátt í viðburðum eða leggja sitt af mörkum til sameiginlegra verkefna.
Þegar Belaynesh varð ófrísk af þriðja barninu sínu vissi hún að eitthvað yrði að breytast. Skömmu eftir fæðinguna hóf hún að baka injera-brauð á heimilum annarra til að afla tekna. Á meðan sá elsta dóttir hennar um yngri systkini sín eftir skóla. Þrátt fyrir mikla vinnu var framtíðin enn óviss.
Elsta dóttir Belaynesh sá um yngri systkini sín eftir skóla.
Íslenska verkefnið breytti öllu
Vendipunktur varð í lífi Belaynesh þegar hún var valin til þátttöku í fjölskylduhjálp SOS Barnaþorpanna sem styrkt er af Íslendingum. Verkefnið greindi ekki aðeins erfiðleikana sem fjölskyldan stóð frammi fyrir heldur einnig þann vilja og dugnað sem Belaynesh hafði þegar sýnt.
Hún fékk þjálfun í frumkvöðlastarfi, fjármálalæsi og uppeldi barna. Börnin hennar fengu fræðslu um réttindi barna, lífsleikni og vernd, auk stuðnings við skólagöngu sína með skólabúnaði og einkennisfatnaði. Fjölskyldan lærði jafnframt að spara og nýta sparnaðar- og lánasjóð sem verkefnið studdi. Eftir sex mánaða reglulegan sparnað fékk Belaynesh sitt fyrsta lán.
Belaynesh (t.h.) ásamt elstu dóttur sinni.
Stofnaði fyrirtæki
Belaynesh notaði lánið til að kaupa hráefni og búnað fyrir eigin injera-framleiðslu. Injera er hefðbundið súrdeigsflatbrauð sem er ein helsta undirstaða matargerðar í Eþíópíu og er bæði notað sem brauð og diskur undir matinn. Upphafið var krefjandi en með þrautseigju tókst henni að byggja upp viðskiptavinahóp. Þegar veitingastaðareigandi sem hafði áður keypt af henni bauð henni reglulegt samstarf opnuðust ný tækifæri.
Í dag rekur hún eigið fyrirtæki, hefur stöðugri tekjur og getur séð börnum sínum betur farborða. Börnin geta einbeitt sér betur að námi sínu og fjölskyldan býr við meira öryggi og stöðugleika.
Belaynesh sér nú bjartari framtíð fyrir börnin sín.
Sér bjartari framtíð fyrir börnin
Framtíðarsýn Belaynesh er skýr. Hún vill halda áfram að stækka reksturinn, efla fjárhagslegt sjálfstæði fjölskyldunnar og skapa börnum sínum betri tækifæri. Hún dreymir um að sjá þau ljúka námi, ná markmiðum sínum og byggja sér gott líf.
Saga Belaynesh sýnir hvernig markviss stuðningur getur hjálpað fjölskyldum að byggja á eigin styrkleikum. Með fræðslu, aðgangi að sparnaði og lánum og stuðningi við atvinnuuppbyggingu hefur verkefnið skapað varanlegar breytingar. Fyrir Belaynesh þýðir það ekki aðeins betri stöðu í dag heldur raunhæfa von um bjartari framtíð fyrir börnin hennar og samfélagið allt.
Um verkefnið
Saga Belaynesh sýnir hvað getur gerst þegar fjölskyldur fá þann stuðning sem þær þurfa til að byggja á eigin styrkleikum. Með ráðgjöf um uppeldi, fræðslu um fjármál, aðgangi að sparnaði og lánum auk stuðnings við atvinnusköpun hefur henni tekist að skapa börnum sínum stöðugra og öruggara uppeldisumhverfi.
Verkefnið styður nú 637 börn sem búa við skort og 224 foreldra og umönnunaraðila þeirra. Jafnframt vinnur það náið með opinberum skólum, grasrótarsamtökum og sparnaðar- og lánasamvinnufélögum að því að efla fjölskyldur og samfélagið á staðnum.
Með því að styrkja foreldra með þekkingu, færni og úrræðum til að annast börn sín stuðlar verkefnið að varanlegum framförum í velferð barna og skapar þeim aukin tækifæri til framtíðar.
Verkefnið er fjármagnað með stuðningi SOS fjölskylduvina og utanríkisráðuneytinu og er liður í þróunarsamvinnu Íslands.
SOS fjölskylduvinur
SOS fjölskylduvinur
SOS-fjölskylduvinir koma í veg fyrir að börn verði vanrækt og yfirgefin. Sem SOS-fjölskylduvinur tekurðu fyrstu skrefin með fjölskyldum út úr sárafátækt svo þær getið staðið á eigin fótum og veitt börnunum bjarta framtíð. Þú ákveður styrktarupphæðina og færð reglulega uppýsingar um verkefnin sem við fjármögnum með þinu framlagi. Svona 20-faldast framlagið þitt!