Um 100 barnafjölskyldur í Eþíópíu komnar langleiðina út úr sárafátækt
SOS fjölskylduvinir á Íslandi mega aldeilis vera stoltir af fjölskyldum sem taka þátt í verkefni okkar í Arba Minch í Eþíópíu. Alls taka 193 fjölskyldur þátt í fjölskylduhjálpinni sem fjármögnuð er af styrktaraðilum SOS á Íslandi, SOS fjölskylduvinum og Utanríkisráðuneytinu. Í þessum fjölskyldum eru 561 barn og 193 foreldrar eða aðrir umönnunaraðilar, sem við skulum hér eftir nefna einfaldlega foreldra og eru að nær öllu leyti einstæðar mæður. Markmiðið er að styðja barnafjölskyldur við að taka skref úr sárafátækt í átt að sjálfbærni – þannig að foreldrar geti sjálfir séð börnum sínum fyrir öruggu heimili og því sem þau þurfa til að vaxa og dafna.
Arba Minch er í sunnanverðri í Eþíópíu.
Fjölbreyttar ástæður fyrir vandræðum foreldranna
Fjölskylduhjálpin snýst ekki um eina ákveðna tegund aðstoðar. Ástæðurnar fyrir því að fjölskylda á erfitt með að sjá fyrir börnum sínum geta verið margar. Tekjur geta verið litlar eða ótryggar, veikindi geta sett fjárhag heimilisins úr skorðum og foreldrar geta þurft stuðning við uppeldi eða aðgang að þjónustu.
Þess vegna er unnið með hverri fjölskyldu út frá hennar stöðu. Foreldrar fá meðal annars aðstoð við að koma af stað tekjuskapandi verkefnum, læra að reka lítil fyrirtæki, spara og halda betur utan um fjármálin. Þeir fá einnig fræðslu um uppeldi og samskipti við börnin. Fjölskyldum er hjálpað að tengjast heilbrigðisþjónustu og öðrum úrræðum sem eru til staðar í samfélaginu.
Börn að leik í skóla í Arba Minch. Margir foreldrar í verkefninu okkar voru í svo slæmri stöðu að þeir gátu ekki sent börnin sín í skóla en geta það nú.
Árangurinn á fyrri hluta árs 2026
Börnin eru ekki aðeins viðtakendur aðstoðarinnar. Þau taka sjálf þátt í að móta áætlanir fjölskyldunnar og fá tækifæri til að segja frá eigin þörfum, áhyggjum og framtíðardraumum. Á fyrstu sex mánuðum ársins 2026 má meðal annars sjá þennan árangur:
300 börn og ungmenni tóku þátt í að endurskoða áætlanir fjölskyldna sinna og koma sínum sjónarmiðum á framfæri.
146 foreldrar fengu fræðslu um barnavernd, samskipti og jákvæðar uppeldisaðferðir.
50 konur gerðu viðskiptaáætlanir og fengu aðgang að lánum til að byggja upp eigin tekjur.
Fjölskyldurnar lögðu samanlagt 104 þúsund Eþíópíu-birr fyrir í sparnað og 30 foreldrar hófu reglulegan sparnað á ný. Þetta er mjög há upphæð á mælikvarða foreldranna á staðnum.
62 fjölskyldur fengu sjúkratryggingu, sem dregur úr hættunni á að veikindi verði fjölskyldunni þungt fjárhagslegt áfall.
Þessi móðir er í verkefninu og hefur nú m.a. tekjur af því að selja grænmeti.
Leiðin úr sárafátækt til sjálfbærni - Svona virkar fjölskylduhjálp SOS
Tekjuöflun og lítil fyrirtæki – stuðningur við að byggja upp reglulegar tekjur með eigin atvinnurekstri og tekjuskapandi verkefnum.
Sparnaður og fjármálalæsi – fjölskyldur fá þjálfun í sparnaði, lánum og betri fjármálastjórn.
Aðgangur að lánsfé – samstarf við sparnaðar- og lánasamtök gerir fjölskyldum kleift að fjármagna raunhæfar viðskiptahugmyndir.
Jákvætt uppeldi – foreldrar fá stuðning við samskipti, aga án ofbeldis og öruggt, hlýlegt uppeldisumhverfi.
Sterkari rödd barnanna – börn taka þátt í áætlunum fjölskyldunnar og fá tækifæri til að segja frá eigin þörfum og skoðunum.
Aðgangur að heilbrigðisþjónustu – fjölskyldum er hjálpað að komast inn í sjúkratryggingakerfi og tengjast nauðsynlegri þjónustu.
Öflugra stuðningsnet í nærumhverfinu – unnið er með skólum, sveitarfélagi og samfélagssamtökum svo stuðningurinn við fjölskyldurnar haldi áfram til lengri tíma.
Verkefnið hófst árið 2024 og núverandi áfangi stendur til ársloka 2026. Engin fjölskylda hafði enn formlega útskrifast úr verkefninu um mitt ár, en á næstu mánuðum verður lagt mat á stöðu fjölskyldnanna. Stefnt er að því að allt að 100 fjölskyldur geti útskrifast úr verkefninu ef matið sýnir að þær séu orðnar nægilega sterkar til að standa á eigin fótum.
Fjölskylduhjálp SOS Barnaþorpanna í Arba Minch er fjármögnuð af SOS Barnaþorpunum á Íslandi. Það er gert að stærstum hluta með fjárstuðningi Utanríkisráðuneytisins sem er hluti af alþjóðlegri þróunarsamvinnu og mannúðaraðstoð Íslands. SOS á Íslandi greiðir mótfamlag til þessarra verkefna og er það fjármagnað með stuðningi íslensku styrktaraðilanna SOS-fjölskyldvina.
Utanríkisráðuneytið leggur stærstan hluta fjármagnsins til þessa verkefnis og er það hluti af alþjóðlegri þróunarsamvinnu og mannúðaraðstoð Íslands.
SOS fjölskylduvinur
SOS fjölskylduvinur
SOS-fjölskylduvinir koma í veg fyrir að börn verði vanrækt og yfirgefin. Sem SOS-fjölskylduvinur tekurðu fyrstu skrefin með fjölskyldum út úr sárafátækt svo þær getið staðið á eigin fótum og veitt börnunum bjarta framtíð. Þú ákveður styrktarupphæðina og færð reglulega uppýsingar um verkefnin sem við fjármögnum með þinu framlagi. Svona 20-faldast framlagið þitt!