Fréttayfirlit 5. ágúst 2026

Tvær og hálf milljón króna til stuðnings viðkvæmum barnafjölskyldum í Namibíu

Tvær og hálf milljón króna til stuðnings viðkvæmum barnafjölskyldum í Namibíu

SOS Barnaþorpin á Íslandi hafa sent 2,5 milljónir króna til verkefnis í fjölskyldueflingu SOS í Namibíu. Verkefnið er unnið til eflingar viðkvæmum barnafjölskyldum og kemur í veg fyrir að þær sundrist. Upphæðin samanstendur af einnar milljónar króna framlagi frá velgjörðafyrirtækinu Lambhúsum og framlögum SOS fjölskylduvina, mánaðarlegra styrktaraðila.

Þessi fjárstuðningur nýtist til að efla vernd barna og styrkja fjölskyldur í Ondangwa-héraði í norðurhluta Namibíu. Markmiðið er að skapa öruggara umhverfi fyrir börn, efla sálræna og félagslega vellíðan þeirra og hjálpa fjölskyldum að byggja upp stöðugri afkomu.

Fjölskylda í Ondangwa-héraði í Namibíu. Fjölskylda í Ondangwa-héraði í Namibíu.

Dregur úr unglingsþungunum og eflir þekkingu og sálræna vellíðan

Stuðningurinn gerir SOS Barnaþorpunum kleift að fræða börn, ungmenni, foreldra og starfsfólk um réttindi barna og mikilvægi barnaverndar. Jafnframt er unnið að því að styrkja barnaverndarnefndir í heimabyggðum svo hægt sé að bregðast hraðar og markvissar við þegar börn þurfa á aðstoð að halda.

Verkefnið leggur einnig ríka áherslu á geðrænan og sálfélagslegan stuðning fyrir börn, ungmenni og foreldra eða aðra umönnunaraðila. Þau fá fræðslu um lífsleikni, heilsu og vellíðan, meðal annars um hvernig megi draga úr tíðni unglingaþungana og koma í veg fyrir smitsjúkdóma. Slík fræðsla styrkir börn og ungmenni til að taka upplýstar ákvarðanir um eigið líf og eykur seiglu þeirra til framtíðar.

Þátttakandi í fjölskyldueflingu í Ondangwa-héraði ásamt starfsfólki SOS. Þátttakandi í fjölskyldueflingu í Ondangwa-héraði ásamt starfsfólki SOS.

Aðgengi að lánum og fræðslu

Mikilvægur þáttur verkefnisins er jafnframt að efla efnahagslega stöðu fjölskyldna. Foreldrar fá þjálfun í frumkvöðlastarfi og stuðning til að koma af stað tekjuskapandi verkefnum. Einnig voru stofnaðir sparnaðar- og lánahópar í heimabyggðum þar sem fjölskyldur geta lagt fyrir, fengið smálán og stutt hver aðra við að byggja upp sjálfbæran rekstur.

Þegar fjölskyldur verða fjárhagslega sterkari minnkar hættan á að börn þurfi að alast upp aðskilin frá foreldrum sínum eða öðrum nánum aðstandendum. Með því stuðlar verkefnið að því að fleiri börn geti alist upp í öruggu fjölskylduumhverfi og, þegar við á, sameinast fjölskyldum sínum á ábyrgan og öruggan hátt.

Algengt er að þátttakendur í þessum verkefnum fái lán til stofnunar á einhverskonar atvinnurekstri. Algengt er að þátttakendur í þessum verkefnum fái lán til stofnunar á einhverskonar atvinnurekstri.

Stuðningurinn mun því ekki aðeins bæta líf einstakra barna heldur einnig styrkja nærsamfélagið í heild með öruggara, heilbrigðara og sjálfbærara stuðningsneti fyrir börn og fjölskyldur.

Þessi fjárstuðningur nýtist til að efla vernd barna og styrkja fjölskyldur í Ondangwa-héraði í norðurhluta Namibíu. Þessi fjárstuðningur nýtist til að efla vernd barna og styrkja fjölskyldur í Ondangwa-héraði í norðurhluta Namibíu.

Nýlegar fréttir

Fleiri feður virkir í uppeldi barna sinna í Úganda
15. sep. 2026 Fjölskylduefling

Fleiri feður virkir í uppeldi barna sinna í Úganda

SOS Barnaþorpin vinna að því að styrkja 200 viðkvæmar barnafjölskyldur í Úganda svo þær geti staðið á eigin fótum. Verkefnið nær til um 1.500 barna og ungmenna auk annarra í nærsamfélaginu. Fjölskyldu...

Um 100 barnafjölskyldur í Eþíópíu komnar langleiðina út úr sárafátækt
9. sep. 2026 Fjölskylduefling

Um 100 barnafjölskyldur í Eþíópíu komnar langleiðina út úr sárafátækt

SOS fjölskylduvinir á Íslandi mega aldeilis vera stoltir af fjölskyldum sem taka þátt í verkefni okkar í Arba Minch í Eþíópíu. Stefnt er að því að allt að 100 barnafjölskyldur geti útskrifast og forml...