Fleiri feður virkir í uppeldi barna sinna í Úganda
SOS Barnaþorpin vinna að því að styrkja 200 viðkvæmar barnafjölskyldur í Mayuge-héraði í Úganda svo þær geti staðið á eigin fótum. Verkefnið hófst árið 2025 og nær til um 1.500 barna auk ungmenna og annarra í nærsamfélaginu. Fjölskylduvinir SOS Barnaþorpanna á Íslandi leggja verkefninu lið ásamt Utanríkisráðuneytinu.
Hugsunin er að hjálpa fjölskyldunum að byggja sig upp til framtíðar fremur en að veita aðeins tímabundna aðstoð. Foreldrar fá meðal annars stuðning við uppeldi, atvinnu- og tekjumöguleika og sparnað. Jafnframt er unnið með skólum, heilbrigðisþjónustu og fólki í nærsamfélaginu svo börn og fjölskyldur hafi sterkara öryggisnet í kringum sig. Lokamarkmiðið er að koma í veg fyrir að börn missi umönnun fjölskyldunnar og að foreldrarnir geti sjálfir séð börnum sínum fyrir því sem þau þurfa.
Verkefniið er í Mayuge héraði. Fjögur SOS barnaþorp eru í Úganda.
804 börn fengu stuðning
Árangurinn er þegar farinn að sjást. Á fyrri helmingi ársins 2026 fengu 804 börn stuðning vegna meðal annars heilsu, næringar, skólagöngu og annarra grunnþarfa í gegnum verkefnið og samstarfsnet þess. Það er meira en tvöfalt fleiri en árið áður, þegar sambærileg tala var 307, og jafnframt langt umfram árlegt markmið um 550 börn.
Einnig hafa átta sparnaðar- og lánahópar fjölskyldna safnað tæpum 19 milljónum úgandískra skildinga. Foreldrar hafa nýtt sparnað og lán til að koma af stað smárekstri og búskap en einnig til að greiða skólagjöld, heilbrigðiskostnað og önnur útgjöld vegna barnanna.
Feður taka meiri þátt
Sérstakt feðrastarf er mikilvægur hluti verkefnisins. Þar er unnið með karla að því að brjóta upp þá gömlu hugmynd að umönnun barna og heimilisstörf séu fyrst og fremst á ábyrgð kvenna. Feður eru hvattir til að taka virkari þátt í daglegu lífi barnanna, uppeldi, heimilisstörfum og ákvörðunum fjölskyldunnar og beita jákvæðum, ofbeldislausum uppeldisaðferðum.
Alls hafa 395 karlar og drengir þegar tekið þátt í starfinu, fleiri en stefnt var að á öllum verkefnistímanum. Þátttakendur lýsa meðal annars meiri þátttöku í umönnun barna, matargerð, heimilisstörfum og kostnaði vegna skólagöngu.
Foreldrarnir sækja fjölmörg námskeið til að auka þekkingu sína.
Yfir 250 börn í bættu námsumhverfi
Verkefnið styður einnig þrjá leik- og forskóla í Mayuge. Þar stunda nú yfir 250 börn nám, samanborið við 163 árið áður. Það er um 54 prósenta fjölgun. Skólarnir hafa meðal annars fengið bækur, náms- og leikefni og útileiktæki til að skapa börnunum betra og öruggara námsumhverfi.
Markmiðið er að árið 2028 hafi að minnsta kosti 150 fjölskyldur náð sjálfbærni og geti staðið á eigin fótum án áframhaldandi stuðnings verkefnisins.
Árangurinn á fyrri hluta árs 2026
90 fulltrúar sveitarfélaga og samfélagsins fengu þjálfun í barnavernd, tilvísunum og eftirfylgni. Í kjölfarið var 804 börnum vísað áfram vegna meðal annars heilsu, næringar, menntunar, andlegs stuðnings og opinberra skilríkja.
395 karlar og drengir tóku þátt í Active Fatherhood-starfinu, þar sem áhersla er lögð á virkari þátttöku feðra í uppeldi, umönnun og heimilisstörfum. Markmið verkefnistímans er að ná til 350 manns.
Átta sparnaðar- og lánahópar fjölskyldna söfnuðu samtals tæpum 19 milljónum úgandískra skildinga. Foreldrar hafa nýtt lán meðal annars til skólagjalda, heilbrigðiskostnaðar, búskapar og lítilla atvinnurekstrarverkefna.
251 barn sótti þrjú leik- og forskóla sem verkefnið styður, samanborið við 163 árið áður. Þar af voru sjö börn með fötlun.
20 ungmenni, tólf stúlkur og átta piltar, hófu starfsnám sem miðast við atvinnumöguleika á svæðinu.
Á verkefnisstað í júní 2026.
Samfélagið sjálft verður sterkara
Mikilvægur hluti verkefnisins er að byggja ekki upp hliðstætt hjálparkerfi heldur efla þau úrræði sem þegar eru til staðar. Sveitarstjórnir, skólar, heilbrigðisþjónusta, sjálfboðaliðar og barnaverndarstarfsfólk fá þekkingu og verkfæri til að greina vanda fyrr og koma börnum og fjölskyldum í rétta þjónustu.
Þannig er markmiðið ekki aðeins að hjálpa fjölskyldum í dag heldur að skilja eftir sterkara samfélag sem getur haldið áfram að vernda og styðja börn til framtíðar. Verkefnið er unnið af SOS Barnaþorpunum í Úganda með stuðningi Utanríkisráðuneytis Íslands og er hluti af þróunarsamvinnu Íslands.
SOS fjölskylduvinur
SOS fjölskylduvinur
SOS-fjölskylduvinir koma í veg fyrir að börn verði vanrækt og yfirgefin. Sem SOS-fjölskylduvinur tekurðu fyrstu skrefin með fjölskyldum út úr sárafátækt svo þær getið staðið á eigin fótum og veitt börnunum bjarta framtíð. Þú ákveður styrktarupphæðina og færð reglulega uppýsingar um verkefnin sem við fjármögnum með þinu framlagi. Svona 20-faldast framlagið þitt!