Fréttayfirlit 16. ágúst 2024

Viltu hitta SOS „barn“ frá Tíbet og Indlandi?

Viltu hitta SOS „barn“ frá Tíbet og Indlandi?


Fimmtudaginn 29. ágúst n.k. klukkan 17 gefst styrktaraðilum SOS á Íslandi og öðrum áhugasömum einstakt tækifæri á að hitta konu sem ólst upp í SOS barnaþorpi. SOS Barnaþorpin á Íslandi efna til viðburðar í salnum á veitingastaðnum Nauthóli þar sem Sonam Gangsang segir frá lífinu í barnaþorpinu og því sem við tók, menningunni, tengingu sinni við Ísland og fleiru ásamt því að svara spurningum úr sal. Sonam ólst upp í SOS barnaþorpi á Hima­læja há­slétt­unni fyrir börn landflótta Tíbetbúa.

SOS barnaþorp eru ekki eins og margir halda.

  • Hvernig er að alast upp í SOS barnaþorpi?
  • Hvað varð til þess að hún flutti í SOS barnaþorp?
  • Hvaða áhrif hafði það á framtíð hennar?
  • Er munur á framtíðartækifærum drengja og stúlkna á Indlandi?

Þessum spurningum og fleirum fáum við svarað á viðburði okkar á Nauthóli. 

Allir eru velkomnir meðan húsrúm leyfir en mikilvægt er að skrá sig annað hvort á Facebook-síðu viðburðarins eða með því að senda tölvupóst á sos@sos.is.

SKRÁNING HÉR

Ingibjörg Steingrímsdóttir var SOS-foreldri Sonam og heimsótti hana árið 2008. Ingibjörg Steingrímsdóttir var SOS-foreldri Sonam og heimsótti hana árið 2008.

Þakkar stuðningi Ingibjargar frama sinn í dag

Sonam er ein af níu dætrum fátækra foreldra sinna sem flúðu Tíbet fótgangandi og sett­ust að Indlandsmegin við landamærin í bænum Leh. Það bjargaði framtíð fjölskyldunnar að í bænum er SOS barnaþorp þar sem Sonam og systur hennar fengu gott heimili og fría skólagöngu.

Sonam átti SOS foreldri á Íslandi, Ingibjörgu Steingrímsdóttur, sem Sonam þakkar hversu langt hún hefur náð í lífinu í dag. Hún kláraði kennaramenntun og starfar nú í menntamálaráðuneyti Tíbeta í útlegð þar sem hún hefur yfirumsjón með lestrarkennslu yngstu bekkjanna í 45 skólum fyrir tíbetsk börn á Indlandi og í Nepal.

Við höfum áður fjallað ítarlega um Sonam og Ingibjörgu eins og sjá má hér: Úr fátækt til frama

Í umsjón Evu Ruzu

SOS foreldrar á Íslandi og aðrir áhugasamir eru velkomnir í Nauthól meðan húsrúm leyfir til að hitta Sonam, hlýða á frásögn hennar og spyrja hana spurninga.

Kynnir og stjórnandi verður Eva Ruza, velgjörðasendiherra SOS Barnaþorpanna á Íslandi og SOS foreldri til margra ára. Fyrir svörum sitja Sonam Gangang og Hans Steinar Bjarnason, upplýsingafulltrúi SOS á Íslandi.
Veitingasala verður á staðnum.

Við ítrekum mikilvægi þess að skrá sig á viðburðinn.

Nýlegar fréttir

Allt sem við vitum um ástandið hjá SOS í Palestínu
18. jún. 2025 Almennar fréttir

Allt sem við vitum um ástandið hjá SOS í Palestínu

Við getum staðfest að öll börn á framfæri SOS Barnaþorpanna í Palestínu eru heil á húfi. Þau líða ekki næringarskort, þó það standi tæpt, og sérstök áhersla er lögð á að hlúa að andlegri heilsu þeirra...

855 krónur af hverju þúsund króna framlagi renna í hjálparstarfið
23. maí 2025 Almennar fréttir

855 krónur af hverju þúsund króna framlagi renna í hjálparstarfið

Ársskýrsla SOS Barnaþorpanna fyrir árið 2024 hefur nú verið birt eftir aðalfund samtakanna 19. maí sl. Þar kemur m.a. fram að hlutfall rekstrarkostnaðar er með því allra lægsta sem gerist eða aðeins 1...