Fréttayfirlit 5. nóvember 2026

SOS Barnaþorpin styrkja starf fyrir fósturbörn á Íslandi

SOS Barnaþorpin styrkja starf fyrir fósturbörn á Íslandi

SOS Barnaþorpin hafa ráðstafað einni milljón króna af erfðagjöf Baldvsins Leifssonar í styrk til Félags fósturforeldra á Íslandi. Tilgangur styrksins er að efla starf félagsins í þágu fósturbarna hér á landi, þau fái betri þjónustu og betra líf. Honum er m.a. varið í fræðslunámskeið fyrir fósturforeldra og viðburði fyrir fósturbörn og -foreldra með áherslu á samveru, stuðning og fræðslu.

Styrkurinn hefur þegar nýst í fjármögnun á fósturfjölskylduhelgi í Vatnaskógi, viðburð sem félagið heldur tvisvar á ári til að efla tengsl milli fósturbarna og fósturfjölskyldna. 20 fósturfjölskyldur tóku þátt eða rúmlega 100 manns sem nutu vel skipulagðrar helgardagskrár í október og nærandi samveru frá föstudegi til sunnudags.

Frá fósturfjölskylduhelginni í Vatnaskógi í október. Frá fósturfjölskylduhelginni í Vatnaskógi í október.

Viðburðurinn endurspeglar áhersluskilaboð SOS Barnaþorpanna, „Tilfinningaleg tengsl foreldra við börn geta breytt öllu“, sem er lausleg þýðing frá „Truly bonding with a child has the power to change the world.“ Þar er vísað í nýja rannsóknarskýrslu  alþjóðasamtaka SOS Barnaþorpanna sem dregur saman nýjustu þekkingu úr taugavísindum og sálfræði um mikilvægi öruggra og nærandi tengsla í lífi barna.

Þessi styrkveiting þykir til nokkrra tíðinda þar sem SOS Barnaþorpin á Íslandi eru ekki með innanlandsverkefni og hafa í raun eingöngu sinnt fjáröflun fyrir SOS barnaþorp og verkefni erlendis í þágu barna. Örfá fordæmi eru þó fyrir því að SOS á Íslandi styrki starf í þágu barna á Íslandi og eru samtökin opin fyrir frekari styrkveitingu til Félags fósturforeldra.

Myndir: Félag fósturforeldra.

SOS foreldri

Vertu SOS foreldri

SOS foreldri

SOS-foreldri tekur þátt í að framfleyta barni sem áður var umkomulaust og tryggir því fjölskyldu á góðu heimili. Barnið fær menntun og öllum grunnþörfum sínum mætt. Þú færð fréttir og myndir af SOS-barninu þínu.

Þegar þú velur að styrkja „barnaþorp“ styrkirðu öll börnin í einu SOS barnaþorpi og færð fréttir þaðan.

Mán­að­ar­legt fram­lag
Styrkja eitt barn 4.500 kr Styrkja tvö börn 9.000 kr Barnaþorp 4.500 kr