Gleðitár flæddu þegar Hafdís og Ambika hittust loksins
Tilfinningaþrungin stund var á skrifstofu SOS Barnaþorpanna á Íslandi og gleðitárin flæddu þegar Ambika Sharma og Guðrún Hafdís Karlsdóttir hittust loks, 33 árum eftir að Hafdís gerðist styrktarforeldri hennar. Ambika ólst upp í SOS barnaþorpi í Greenfields á Indlandi og sem barn skrifaðist hún á við Hafdísi.
Sjá einnig: Ambika ræðir uppvöxtinn í barnaþorpinu og tengslin við Hafdísi
Það vakti landsathygli sumarið 2025 þegar Ambika bað SOS Barnaþorpin á Íslandi um aðstoð við að finna Hafdísi en Ambika og eiginmaður hennar voru þá að skipuleggja ferðalag til Íslands. Ambika hafði aðeins millinafn Hafdísar og gerði það leitina erfiðari því vegna persónuverndarlaga var ekki lengur tenging á milli þeirra í tölvukerfi samtakanna eftir allan þennan tíma.
Augnablikið þegar Ambika og Hafdís hittust í fyrsta sinn.
Ákall á Facebooksíðu SOS á Íslandi varð til þess að Hafdís fannst í júní 2025 en ekkert varð þó af heimsókn Ambiku til Íslands það árið vegna erfiðleika við að fá vegabréfsáritun. Það gekk þó öllu betur ári síðar og kom Ambika til landsins í lok september ásamt eiginmanni sínum og fóru þau í hringferð um Ísland.
Sjá einnig: Hafdís fundin: „Draumur sem mér datt aldrei í hug að myndi rætast“
Að henni lokinni kom að því að Ambika og Hafdís gátu loksins hist á skrifstofu SOS Barnaþorpanna í Hamraborg í Kópavogi. Ambika gekk hröðum skrefum að Hafdísi og föðmuðust þær vel og innilega milli þess sem þær þurrkuðu gleðitár.
Ógleymanleg stund.
„Mikið er gott að sjá þig“
„Mikið er gott að sjá þig,“ voru fyrstu orð Hafdísar og föðmuðust þær vel og lengi. Ambika svaraði Hafdísi fyrir að þakka henni innilega fyrir stuðninginn á árum áður. „Það var alveg sjálfsagt,“ sagði Hafdís.
Þær settust svo niður og veittu fréttastofu RÚV viðtal um þessa langþráðu stund og skiptust svo á gjöfum. Frétt RÚV má sjá hér fyrir neðan og einnig má sjá myndband af augnbalikinu á Facebook þar sem rætt er við Hafdísi meðan hún bíður eftir Ambiku.
SOS foreldri
Vertu SOS foreldri
SOS-foreldri tekur þátt í að framfleyta barni sem áður var umkomulaust og tryggir því fjölskyldu á góðu heimili. Barnið fær menntun og öllum grunnþörfum sínum mætt. Þú færð fréttir og myndir af SOS-barninu þínu.
Þegar þú velur að styrkja „barnaþorp“ styrkirðu öll börnin í einu SOS barnaþorpi og færð fréttir þaðan.