Tónleikar og kaffiboð fyrir eldri borgara
Hér hjá SOS á Íslandi erum við með ungmennaráð sem er stútfullt af hæfileika-, hugmyndaríku og duglegu ungu fólki. Það var glatt á hjalla í gær þegar ungmennaráðið heimsótti Boðann, félagsmiðstöð eldri borgara í Kópavogi. Þar héldu meðlimir ungmennaráðsins kynningu á starfi ráðsins og SOS Barnaþorpanna.
Ungmennin buðu svo gestum upp á tónlistaratriði þar sem tvær úr ráðinu, þær Lilja Helgadóttir og Senía Guðmundsdóttir, léku þekkt íslensk lög á flautu og hörpu. Ungmennaráðið bauð svo upp á kaffi, vöfflur og kökur sem runnu ljúflega niður við undirleik fallegra hörputóna Seníu.
Hér fyrir neðan má sjá stutt myndskeið frá viðburðinum þar sem rætt er við Sunnu Líf Kristjánsdóttur, formann ungmennaráðsins, og Lilju Helgadóttur, ritara.
Ungmennaráðið hefur undanfarið ár haft til sölu Flóttabangsann til styrktar flóttabörnum sem koma til Grikklands. Ágóðanum af sölu á Flóttabangsanum er varið í eflingu flóttabarnannanna við að aðlagast nýjum aðstæðum og veita þeim tækifæri á menntun og betra lífi. Fjölmargir nýttu sér heimsókn ungmennaráðsins í Boðann til að kaupa Flóttabangsann og setja hann í jólapakkann hjá barnabörnum.
Nýlegar fréttir
Laust starf: Þjónustu- og skrifstofufulltrúi
SOS Barnaþorpin leita að drífandi einstaklingi sem brennur fyrir mannúðarmál, nýtir sín í mannlegum samskiptum og er töluglöggur.
Yfir 19 milljónir barna í Súdan ganga ekki í skóla
Framkvæmdastjóri SOS Barnaþorpanna í Súdan segir neyðarástandið í landinu eiga eftir að skilja eftir ör á sál landsmanna. Milljónir eru á flótta vegna borgarastríðs og daglega verða yfir hundrað manns...