Fréttayfirlit 9. maí 2018

Nýtt SOS-barnaþorp í Sýrlandi



SOS í Sýrlandi hefur opnað nýtt barnaþorp í höfuðborginni Damaskus því þar er mikil þörf á fjölbreyttari hjálparúrræðum fyrir umkomulaus börn. Í þorpinu er pláss fyrir 80 börn í tíu íbúðum og eru SOS-barnaþorpin nú orðin tvö í borginni.

Þorpið sem staðsett er í suðvestur hluta borgarinnar var vígt í október sl. og eru fyrstu fjölskyldurnar þegar fluttar inn. Það léttir til með öðrum SOS barnaþorpum í nágrenninu í þessu stríðshrjáða landi. Hitt SOS-þorpið í borginni var opnað fyrir 37 árum og var orðið yfirfullt.

Á öruggasta svæðinu í Sýrlandi

„Þorpið er 16 km frá miðborginni, nálægt landamærunum að Líbanon, á einu af öruggustu svæðum Sýrlands. Öryggi barnanna er í algerum forgangi.“ segir framkvæmdastjóri þorpsins, Ghufran Awera.

Eldra SOS-þorpið í Damaskus var opnað árið 1981 og þorpið í Aleppo árið 1998. Það síðarnefnda var yfirgefið árið 2012 og börnin flutt til Damaskus. Þar búa börnin í vinalegu umhverfi og fá stuðning við nám. Þetta eru bæði munaðarlaus börn og börn sem bíða eftir að geta sameinast fjölskyldum sínum á ný. Þriðja þorpið í Sýrlandi er í Tartous.

25 þúsund Íslendingar styrkja SOS

SOS Barnaþorpin starfa í 135 löndum og í dag búa tæplega 90 þúsund börn og unglingar í yfir 570 SOS barnaþorpum víðsvegar um heiminn. Yfir 25 þúsund Íslendingar styrkja SOS barnaþorpin, meðal annars sem styrktarforeldrarbarnaþorpsvinir og fjöldskylduvinir.

Nýlegar fréttir

Verðlaunafé Rúriks eflir barnafjölskyldur í sárafátækt
10. apr. 2026 Fjölskylduefling

Verðlaunafé Rúriks eflir barnafjölskyldur í sárafátækt

Rúrik Gíslason hefur undanfarin fimm ár unnið alls 5,5 milljónir króna í verðlaunafé í sjónvarpsþáttum í Þýskalandi sem hann hefur látið renna til SOS Barnaþorpanna á Íslandi. Rúrik hefur í sínum verk...

Fræðsluspjall um erfðaskrár
24. mar. 2026 Erfðagjafir

Fræðsluspjall um erfðaskrár

Íslendingar eru í auknum mæli farnir að gera erfðaskrár og þeim fjölgar sem láta eignir sínar að hluta eða öllu leyti renna til góðgerðarsamtaka. En hvað má maður ráðstafa miklum hluta eigna sinna ef ...