Neyðarsöfnun vegna hungursneyðar í Súdan
SOS Barnaþorpin á Íslandi hafa ákveðið að senda 15 milljónir króna til neyðaraðgerða vegna hungursneyðar í Súdan. Af þessu tilefni höfum við efnt til neyðarsöfnunar og gefið Íslendingum kost á taka þátt í henni.
Ástandið í Súdan er orðið að stærstu mannúðarkrísu í heiminum í dag. Yfir 100 manns deyja daglega úr hungri og milljónir líða næringarskort. Yfir 25 milljónir manna, helmingur íbúa Súdan, eru hjálparþurfi vegna stríðsátaka sem brutust út í apríl 2023. Skólahald liggur niðri með þeim afleiðingum að yfir 19 milljónir barna og ungmenna hafa ekki geta sótt skóla eftir að átökin brutust út.
10.7 milljónir íbúa Súdan eru á vergangi í eigin landi. Helmingur þeirra eru börn undir 18 ára aldri sem hafa upplifað meira en ár af aðskilnaði, brot á mannréttindum, áföll, ofbeldi og skort á aðgengi til að sinna grunnþörfum sínum.
Neyðaraðgerðir SOS fyrir Súdan
SOS Barnaþorpin hafa starfað í Súdan síðan 1978 og verið til staðar fyrir umkomu- og fylgdarlaus börn og ungmenni og barnafjölskyldur í sárafáækt. Þrjár neyðaraðgerðastöðvar hafa verið settar upp, ein í Súdan og tvær í nágrannaríkinu Chad. Aðgerðir okkar fela m.a. í sér:
- Fjölskylduumönnun fylgdarlausra barna
- Vernd og fræðslu
- Aðgerðir til að tryggja lífsviðurværi
- Að tryggja fæðuöryggi
- Fjárstyrki og almenna neyðaraðstoð
- Fjölskyldueflingu
Alls eru 145 börn og ungmenni á framfæri barnaþorpsins í höfuðborginni Khartoum og eiga 83 þeirra SOS-foreldra á Íslandi. 68 þeirra voru búsett í barnaþorpinu þegar átökin brutust út og var þeim öllum komið í öruggt skjól ásamt starfsfólki og fjölskyldum þess. Síðan þá hafa þau verið flutt milli staða eftir aðstæðum til að tryggja öryggi þeirra.
Sjá einnig:
SOS barnaþorp í Súdan rýmt og hertekið
„Héldum að við yrðum drepin“
Neyð í Súdan
Neyð í Súdan
Hungursneyð ríkir í Súdan! Taktu þátt í neyðarsöfnun SOS fyrir börn og fjölskyldur þeirra sem eiga um sárt að binda vegna stríðsátakanna og hungursneyðar í Súdan.
Yfir 100 manns deyja daglega úr hungri. Milljónir líða næringarskort. Þú getur annað hvort gefið stakt framlag eða gerst mánaðarlegur neyðarvinur. Veldu þá styrktarleið sem hentar þér. Athugaðu að þú getur breytt fjárhæðinni (lágmarksupphæð er 1.000 krónur.)