Ísland styrkir aftur sumarbúðir fyrir stríðshrjáð börn í Úkraínu
SOS Barnaþorpin á Íslandi hafa sent fjárstuðning til sumarbúða í Úkraínu fyrir börn sem hafa orðið fyrir alvarlegum áhrifum af stríðinu. Þar taka börnin þátt í fjölbreyttu starfi sem hjálpar þeim að vinna úr áföllum og byggja upp öryggi og seiglu.
Verkefnið er unnið með stuðningi utanríkisráðuneytisins, sem leggur til rúmar 17,3 milljónir króna í gegnum þróunarsamvinnu Íslands. SOS leggur einnig fram 2,2 milljónir króna í mótframlag sem fjármagnað er með frjálsum framlögum styrktaraðila á Íslandi.
Í sumarbúðunum fá börnin tækifæri til að byggja upp traust, eignast nýja vini og vinna úr erfiðri reynslu með stuðningi fagfólks og jafnaldra.
Sumarbúðir sem efla andlega líðan og seiglu
Stuðningurinn gerir SOS Barnaþorpunum í Úkraínu kleift að halda tvennar tveggja vikna sumarbúðir fyrir allt að 160 börn á aldrinum 7–17 ára. Þangað koma börn sem hafa upplifað stríðið af eigin raun, meðal annars frá víglínu- og hernumdum svæðum, börn sem hafa þurft að flýja heimili sín, misst nána ástvini eða eiga foreldra sem berjast í stríðinu.
Sumarbúðirnar fara fram á öruggu svæði í vesturhluta Úkraínu þar sem börnin fá tækifæri til að komast tímabundið frá ógn stríðsins. Þar fá þau faglega, sálfræðilega og sálfélagslega aðstoð, taka þátt í hópastarfi, listsköpun, íþróttum, útivist og öðrum verkefnum sem hjálpa þeim að vinna úr áföllum og byggja upp öryggi og seiglu. Börnum sem þurfa frekari meðferð verður jafnframt vísað áfram í viðeigandi úrræði.
Leikur, hreyfing og samvera eru mikilvægur hluti af sumarbúðunum þar sem börnin fá tækifæri til að gleyma stríðinu um stund og endurheimta gleði og öryggiskennd.
Góð reynsla komin á svona sumarbúðir
Þörfin fyrir slíkan stuðning er gríðarleg. Talið er að yfir 1,5 milljónir barna í Úkraínu séu í hættu á að þróa með sér áfallastreitu eða þunglyndi vegna stríðsins. Könnun SOS Barnaþorpanna í Úkraínu sýnir að algengustu einkennin eru ótti, einbeitingarerfiðleikar, pirringur, svefnvandamál og félagsleg einangrun, en þrír af hverjum tíu foreldrum segja að sálfræðiaðstoð fyrir börn sé einfaldlega ekki í boði í þeirra heimabyggð.
Reynslan af sambærilegum sumarbúðum hefur verið afar góð og er þetta í annað sinn sem SOS á Íslandi fjármagnar slíkt verkefni í Úkraínu með stuðningi utanríkisráðuneytisins. Frá árinu 2022 hafa nær 4.000 úkraínsk börn tekið þátt í slíkum búðum á vegum SOS Barnaþorpanna og árið 2025 sögðust 94% þátttakenda finna fyrir bættri andlegri líðan að dvöl lokinni. Með stuðningi Íslands geta enn fleiri börn fengið mikilvægt skjól, umhyggju og von á erfiðum tímum.
Í sumarbúðunum gefst börnunum tækifæri til að leika sér, hlæja og njóta þess að vera börn – augnablik sem skipta miklu máli fyrir andlega líðan þeirra.
Allar myndir í þessari frásögn eru frá sumarbúðunum 2025 sem SOS á Íslandi fjármagnaði með stuðningi utanríkisráðuneytins.
Nýlegar fréttir
Tvær og hálf milljón króna til stuðnings viðkvæmum barnafjölskyldum í Namibíu
SOS Barnaþorpin á Íslandi hafa sent 2,5 milljónir króna til verkefnis í fjölskyldueflingu SOS í Namibíu. Verkefnið er unnið til eflingar viðkvæmum barnafjölskyldum og kemur í veg fyrir að þær sundrist...
Tilfinningaleg tengsl foreldra við börn geta breytt öllu
Ný rannsóknarskýrsla frá SOS Barnaþorpunum sýnir að örugg tengsl við umhyggjusama fullorðna eru ekki aðeins mikilvæg fyrir börn – þau eru sjálfur grunnurinn að seiglu, bata eftir áföll og heilbrigðum ...