Fréttayfirlit 8. október 2025

Sumarbúðir fyrir stríðshrjáð börn í Úkraínu

Sumarbúðir fyrir stríðshrjáð börn í Úkraínu

SOS Barna­þorp­in fjár­magna fjöl­mörg umbóta- og mannúðarverk­efni í þágu velfarðar barna og ungmenna víða um heim með stuðningi Íslendinga. Nú í september lauk vel heppnuðum sumarbúðum í Úkraínu fyrir 160 börn sem hafa orðið fyrir áhrifum af stríðinu og var fjármögnun þeirra tryggð af SOS á Íslandi.

Reynsla er komin á slíkar sumarbúðir í framkvæmd SOS Barnaþorpanna í Úkraínu eftir að innrás Rússa hófst árið 2022 og hefur þetta frábæra framtak reynst vel fyrir börn sem hafa gengið í gegnum áföll. Markmið sumarbúðanna er að veita sálrænan stuðning og bæta andlega heilsu barna sem hafa orðið fyrir áhrifum af stríðinu. Um er að ræða tvær 80 barna sumarbúðir sem staðsettar eru á öruggu svæði í Vestur Úkraínu.

Frá sumarbúðum í Úkraínu 2024. Frá sumarbúðum í Úkraínu 2024.

Bæta líðan og tilfinningalegt jafnvægi barnanna

Dagskrá sumarbúðanna er margþætt og snýst um að skapa skemmtilegt umhverfi fyrir börnin til að leika og skemmta sér. Einnig að veita beinan sálrænan stuðning og umhverfi til að hjálpa þátttakendum að vinna úr neikvæðum áhrifum stríðsins.

Markmið sumarbúðanna er að bæta líðan og tilfinningalegt jafnvægi barnanna, efla seiglu þeirra og félagsleg tengsl. Lykilatriði er að börnin fái að vera í öruggu umhverfi fjarri átökum og öðrum hættusvæðum.

Heildarkostnaður við sumarbúðirnar nam rúmum 16,8 milljónum króna og nam styrkur utanráðuneytisins 16,6 milljónum króna. Mótframlag frá SOS á Íslandi brúaði bilið og eru slíkar greiðslur fjármagnaðar með stuðningi þeirra Íslendinga sem gefa stök framlög.

Stuðningur íslenskra yfirvalda við þetta verkefni er liður í mannúðaraðstoðar- og þróunarsamvinnuverkefnum Íslands í Úkraínu.

Sumarbúðir SOS Barnaþorpanna í Úkraínu. Sumarbúðir SOS Barnaþorpanna í Úkraínu.

Nýlegar fréttir

Skemmdir hjá SOS í Úkraínu
2. júl. 2026 Almennar fréttir

Skemmdir hjá SOS í Úkraínu

Skrifstofa SOS Barnaþorpanna í Kænugarði í Úkraínu varð fyrir skemmdum sl. nótt þegar Rússar létu sprengjum rigna yfir borgina. Starfsfólk er óhult.

Venesúela: Jarðskjálftar hafa áhrif á þúsundir barna
26. jún. 2026 Almennar fréttir

Venesúela: Jarðskjálftar hafa áhrif á þúsundir barna

Öflugir jarðskjálftar riðu yfir Venesúela með þeim afleiðingum að þúsundir manna hafa orðið fyrir áhrifum. Börnin og starfsfólkið í SOS barnaþorpunum í landinu eru óhult en lífsreynslan hefur tekið á....