„Héldum að við yrðum drepin“
Í apríl sögðum við frá rýmingu barnaþorps í höfuðborg Súdan vegna blóðugra átaka í nágrenni þess. Í kjölfarið var þorpið svo hertekið af vopnuðum sveitum og halda þær enn til í barnaþorpinu.
Börnin voru öll flutt við illan leik í öruggt skjól utan höfuðborgarinnar. Þar reyna þau að ná áttum og jafna sig eftir að hafa séð og upplifað hræðilega hluti sem ekkert barn ætti að þurfa að sjá og upplifa. Raunar glíma þau mörg við alvarlegar sálarlegar afleðingar þessa áfalls og þurfa aðstoð sérfræðinga.
„Þetta var hræðileg reynsla", segir forstöðumaður SOS barnaþorpsins í Karthoum. Þar vísar hann til þess þegar skotbardagar áttu sér stað rétt utan við barnaþorpið. „Satt best að segja héldum við að við yrðum drepin í þessum átökum. Þetta var algjör martröð.“
Skemmdir á barnaþorpinu
„Sem betur fer áttum við nægar birgðir þegar átökin brutust út. Börnin höfðu alltaf nóg að borða. Það var samt erfiðara með vatnið. Pípulagnir og vatnstankur skemmdust í átökunum og við þurftum að sækja vatn út fyrir barnaþorpið, sem var bæði erfitt og hættulegt."
Sem fyrr segir eru börnin nú örugg og bíður starfsfólk SOS í Súdan þess að barnaþorpinu verði skilað í hendur SOS og þá má búast við að ráðast þurfi í endurbætur og þrif áður en börnin geta snúið aftur heim.
Nýlegar fréttir
13 milljónir til Nepal: Minnst 107 börn hafa orðið viðskila við foreldra sína
SOS Barnaþorpin á Íslandi hafa ákveðið að senda 13 milljónir króna til neyðaraðgerða SOS í Nepal eftir mannskæðu flóðin sem þar skullu á 26. ágúst sl. Mikill fjöldi Íslendinga hefur bæði gefið stök fr...
Svala er nýr fjármálastjóri SOS
Svala Þyri Garðarsdóttir hefur verið ráðin fjármálastjóri SOS Barnaþorpanna á Íslandi og hóf hún störf hjá okkur í ágúst. Svala er viðsktiptafræðingur með MSc í reikningshaldi og endurskoðun. Hún star...