Fjölskylduefling SOS á Íslandi hafin á Filippseyjum
Tímamót voru á mánudaginn 1. apríl þegar nýja fjölskyldueflingarverkefnið okar á Filippseyjum hófst formlega. SOS á Íslandi fjármagnar verkefnið með stuðningi Utanríkisráðuneytisins sem lagði til rúmar 45 milljónir króna. Mótframlag SOS eru rúmar 11 milljónir króna og er það fjármagnað af styrktaraðilum SOS á Íslandi sem kallast SOS-fjölskylduvinir.
1800 börnum hjálpað
Verkefnið á Filippseyjum er til þriggja ára. Það nær til 1800 barna og ungmenna og snýst um að klæðskerasniðna aðstoð til barnafjölskyldna sem eiga erfitt með að mæta þörfum barnanna og börnin eiga á hættu að missa forsjá foreldra sinna. Eitt af hverjum 20
börnum á Filippseyjum hefur verið yfirgefið, er munaðarlaust eða vanrækt.
Hvað nú?
SOS á Íslandi hefur haft nokkra aðkomu að útfærslu verkefnisins, m.a. umfang þess og staðsetningar í samráði við heimamenn sem sjá þó um aðaláherslur og útfærslu þess. Með formlegu upphafi verkefnisins á mánudaginn hófst ferli ráðninga á starfsfólki, uppsetning skrifstofu og önnur skipulagning en skjólstæðingar hafa þegar verið valdir eftir mati fagfólks á svæðinu.
SOS Barnaþorpin á Íslandi fjármagna nú þrjú Fjölskyldueflingarverkefni en hin standa yfir í Eþíópíu og Perú.
Fjölskylduefling SOS Barnaþorpanna nær til heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna nr. 1, 2, 3, 4, 5, 6, 8 og 11. SOS Barnaþorpin uppfylla heimsmarkmið númer 1, 4, 8, 10 og 16 að fullu. Þar að auki uppfylla þau markmið númer 3,5 og 17 að hluta.
Nýlegar fréttir
SOS Barnaþorpin styrkja starf fyrir fósturbörn á Íslandi
SOS Barnaþorpin hafa ráðstafað einni milljón króna af erfðagjöf Baldvsins Leifssonar í styrk til Félags fósturforeldra á Íslandi. Tilgangur styrksins er að efla starf félagsins í þágu fósturbarna hér ...
Gleðitár flæddu þegar Hafdís og Ambika hittust loksins
Tilfinningaþrungin stund var á skrifstofu SOS Barnaþorpanna á Íslandi og gleðitárin flæddu þegar Ambika Sharma og Guðrún Hafdís Karlsdóttir hittust loks, 33 árum eftir að Hafdís gerðist styrktarforeld...
