Frétta­yf­ir­lit 3. nóv­em­ber 2023

Sjö manna fjöl­skylda dó í sprengju­árás - „Börn­in eru hrædd“

Sjö manna fjölskylda dó í sprengjuárás - „Börnin eru hrædd“

„Skila­boð okk­ar til al­þjóða­sam­fé­lags­ins eru skýr. Börn eiga að vera í skjóli fyr­ir sprengj­um og öðr­um árás­um. Það þarf að vernda börn­in. Þetta þarf að ger­ast strax enda kveða al­þjóða­lög á um að börn­um sé hlíft og óbreytt­um borg­ur­um. Við vilj­um vopna­hlé. Strax.“

Þetta seg­ir starfs­kona SOS Barna­þorp­anna í Palestínu í við­tali við ís­lenska fréttamið­il­inn Heim­ild­ina. Af ör­ygg­is­ástæð­um get­ur hún ekki kom­ið fram und­ir nafni. Kon­an var ný­kom­in heim úr vinn­unni þeg­ar Heim­ild­in náði tali af henni en hún býr og starfar á Vest­ur­bakk­an­um. Sjálf er hún fædd og upp­al­in í Palestínu.

Síðustu vikur hefur börnunum verið kennt hvernig á að bregðast við ef ráðist verður á þorpin þar sem þau búa. Starfskona SOS í Palestínu

Sækja vatn í brunna

Um 160 palestínsk börn búa í SOS barna­þorp­um fyr­ir botni Mið­jarð­ar­hafs, 76 þeirra eru í þorp­um í Rafah sunn­ar­lega á Gaza­strönd­inni, um 30 kíló­metra suð­vest­ur af Gaza­borg. Flest barn­anna eru um­komu­laus og í umönn­un SOS þar sem starfs­kon­urn­ar eru ým­ist kall­að­ar mæð­ur eða frænk­ur. Kon­an seg­ir að erfitt hafi ver­ið að ná sam­bandi við þorp­in sem eru á Gaza síð­ustu daga þar sem síma- og net­sam­band sé stop­ult. Hún seg­ir að börn­in séu öll óhult.

Börn­in, mæð­urn­ar og frænkurn­ar eigi allt að tveggja mán­aða mat­ar­birgð­ir og sækja vatn í brunna sem hef­ur ver­ið kom­ið fyr­ir í þorp­un­um. „Hins veg­ar er raf­magn af mjög skorn­um skammti, dug­ar í um þrjár klukku­stund­ir á sól­ar­hring,“ seg­ir hún.

„Börn eiga að vera í skjóli fyrir sprengjum og öðrum árásum. Það þarf að vernda börnin. Þetta þarf að gerast strax,“ segir starfskona SOS í Palestínu. „Börn eiga að vera í skjóli fyrir sprengjum og öðrum árásum. Það þarf að vernda börnin. Þetta þarf að gerast strax,“ segir starfskona SOS í Palestínu.

Sjö manna fjöl­skylda dó í sprengju­árás

SOS styð­ur einnig fjöl­skyld­ur sem eiga um sárt að binda. „Þetta eru stuðn­ings­verk­efni og það eru um 350 fjöl­skyld­ur sem þiggja þá að­stoð. 1.500 börn til­heyra þess­um fjöl­skyld­um. Marg­ar þeirra búa á Gaza­strönd­inni og nú þeg­ar höf­um við feng­ið fregn­ir af því að sjö manna fjöl­skylda dó í sprengju­árás, hjón og fimm börn.

Við höf­um líka feng­ið að vita af ann­arri fjöl­skyldu sem varð fyr­ir árás. Mamm­an er ekkja, hún er mik­ið slös­uð, elsti son­ur henn­ar sem var 22 ára er lát­inn og litlu systkini hans þrjú líka. Son­ur­inn var fyr­ir­vinna fjöl­skyld­unn­ar. Þetta er bara það sem við höf­um feng­ið stað­fest,“ seg­ir kon­an og bæt­ir við að mun fleiri séu dán­ir á Gaza en greint hef­ur ver­ið frá því að fjöldi fólks sé graf­ið und­ir rúst­um. „Ótt­ast er að það séu mjög mörg börn graf­in í rúst­um húsa.“

Þetta eru hræðilegustu árásir sem gerðar hafa verið á þessu svæði og það hefur áhrif á okkur öll. Starfskona SOS í Palestínu.

Ástand­ið muni versna mik­ið

Hún seg­ir að börn og óbreytt­ir borg­ar­ar fyr­ir botni Mið­jarð­ar­hafs sem hafi ekk­ert til saka unn­ið séu fórn­ar­lömb póli­tísks fár­viðr­is.

„Þetta eru hræði­leg­ustu árás­ir sem gerð­ar hafa ver­ið á þessu svæði og það hef­ur áhrif á okk­ur öll, líka þau sem eru ekki í miðju átak­anna. Við biðj­um um vopna­hlé og því er hafn­að. Það er ekki einu sinni sam­þykkt að leggja nið­ur vopn þannig að hægt sé að koma mat, vatni og lyfj­um inn á svæð­in. Þetta er al­ger­lega skelfi­legt og ég ótt­ast að ástand­ið eigi eft­ir að versna mik­ið á næstu dög­um.“

SOS barna­þorp­in hafa ver­ið starf­rækt í Palestínu frá ár­inu 1968, eða í 55 ár, og í Ísra­el í 46 ár, frá ár­inu 1977.

Sjá einnig: SOS á Ís­landi send­ir 10 millj­ón­ir í neyð­ar­að­gerð­ir

Ný­leg­ar frétt­ir

855 krónur af hverju þúsund króna framlagi renna í hjálparstarfið
23. maí 2025 Al­menn­ar frétt­ir

855 krón­ur af hverju þús­und króna fram­lagi renna í hjálp­ar­starf­ið

Árs­skýrsla SOS Barna­þorp­anna fyr­ir árið 2024 hef­ur nú ver­ið birt eft­ir að­al­fund sam­tak­anna 19. maí sl. Þar kem­ur m.a. fram að hlut­fall rekstr­ar­kostn­að­ar er með því allra lægsta sem ger­ist eða að­eins 1...

23 milljónum króna af erfðagjöf ráðstafað til háskólamenntunar
22. maí 2025 Erfða­gjaf­ir

23 millj­ón­um króna af erfða­gjöf ráð­staf­að til há­skóla­mennt­un­ar

SOS Barna­þorp­in á Ís­landi hafa ráð­staf­að 23 millj­ón­um króna af erfða­gjöf til há­skóla­mennt­un­ar ung­menna í Afr­íku, nán­ar til­tek­ið í Rú­anda. Ráð­stöf­un­in er sam­kvæmt ósk­um arf­leif­anda, Bald­vins Leifs­son­ar...