Fréttayfirlit 4. maí 2026

Aðalfundur SOS Barnaþorpanna verður 20. maí

Aðalfundur SOS Barnaþorpanna verður 20. maí

Aðalfundur SOS Barnaþorpanna á Íslandi 2026 verður haldinn miðvikudaginn 20. maí kl. 17:00 í safnaðarheimili Kópavogskirkju. Rétt til fundarsetu hafa skráðir aðildarfélagar að samtökunum.

Til þess að fé­lagi geti nýtt fé­lags­leg rétt­indi sín á að­al­fundi skal hann skrá sig á fund­inn með sann­an­leg­um hætti eigi síð­ar en sól­ar­hring fyr­ir boð­að­an að­al­fund og vera í skil­um með fé­lags­gjald. Það má gera með tölvupósti á netfangið sos@sos.is eða með símtali á skrifstofu SOS í síma 5642910.

Kosið um þrjú stjórnarsæti

Að þessu sinni þarf að kjósa tvo aðalmenn til þriggja ára og einn varamann til eins árs. Báðir stjórnarmenn og varamaður sem nú ljúka sínum tímabilum gefa kost á sér áfram.

Núverandi stjórn SOS

Formaður: Kristján Þ. Davíðsson (til 2028)
Þorsteinn Arnórsson (til 2026)
Ólafur Örn Ingólfsson (til 2026)
Ingibjörg E. Garðarsdóttir (til 2027)
Anna Bjarney Sigurðardóttir (til 2027)

Varamaður: Svala Ísfeld Ólafsdóttir (til 2026)

Þorsteinn, Ólafur og Svala gefa öll kost á sér áfram.

Frestur til að bjóða sig fram í stjórn er viku fyrir aðalfund, þ.e. 13. maí. Eigi tilnefningarnefnd  að geta tekið afstöðu til framboða þurfa þau að berast samtökunum í síðasta lagi tveimur vikum fyrir aðalfund, þ.e. 6. maí. Framboð skulu send á netfangið frambod@sos.is ásamt stuttu kynningarbréfi þar sem kemur fram stutt ágrip og ástæður framboðs.

Um réttindi félaga, hlutverk stjórnar, aðalfundastörf og fleira má lesa í samþykktum SOS Barnaþorpanna á Íslandi. Nánari upplýsingar veitir skrifstofa samtakanna í síma 564 2910 og netfanginu sos@sos.is.

Nýlegar fréttir

Gleðitár flæddu þegar Hafdís og Ambika hittust loksins
5. okt. 2026 Almennar fréttir

Gleðitár flæddu þegar Hafdís og Ambika hittust loksins

Tilfinningaþrungin stund var á skrifstofu SOS Barnaþorpanna á Íslandi og gleðitárin flæddu þegar Ambika Sharma og Guðrún Hafdís Karlsdóttir hittust loks, 33 árum eftir að Hafdís gerðist styrktarforeld...

Svona tuttugufaldast framlagið þitt
2. okt. 2026 Fjölskylduvinir

Svona tuttugufaldast framlagið þitt

Þegar þú gefur fjárframlög til góðgerðarmála verður til það sem kallað er félagsleg arðsemi af framlögunum þínum. Í skýrslunni 75 Years Of Impact sem gerð var í tilefni af 75 ára afmæli SOS Barnaþorpa...