Fréttayfirlit 4. september 2026

13 milljónir til Nepal: Minnst 107 börn hafa orðið viðskila við foreldra sína

SOS Barnaþorpin á Íslandi hafa ákveðið að senda 13 milljónir króna til neyðaraðgerða SOS í Nepal eftir mannskæðu flóðin sem þar skullu á 26. ágúst sl. Mikill fjöldi Íslendinga hefur bæði gefið stök framlög til aðgerðanna eða skráð sig fyrir mánaðarlegum framlögum sem SOS-neyðarvinur. Í dag hafa safnast um tvær milljónir króna.

Flóðin eru mannskæðustu náttúruhamfarir í Nepal frá jarðskjálftanum mikla árið 2015. Í neyðaraðgerðum SOS Barnaþorpanna í Nepal er sérstök áhersla lögð á vernd barna. Talið er að að minnsta kosti 107 börn hafi orðið viðskila við foreldra sína eða umsjónarfólk í hamförunum. Slíkar aðstæður auka verulega hættuna á vanrækslu, misnotkun og mansali.

Yfir 1.200 manns hafa látist, 3.916 er saknað og hamfarirnar hafa haft áhrif á líf 1,6 milljóna manna, þar af um 17.000 barna.

SOS Barna­þorp­in hafa starf­að í Nepal frá ár­inu 1972 og starf­semi sam­tak­anna er víð­tæk í land­inu. Þar eru tíu SOS barna­þorp. SOS Barna­þorp­in hafa starf­að í Nepal frá ár­inu 1972 og starf­semi sam­tak­anna er víð­tæk í land­inu. Þar eru tíu SOS barna­þorp.

Fylgdarlausum börnum tryggð umönnun

Starfsfólk SOS vinnur nú að því að finna og skrá börn sem eru ein á ferð eða hafa misst báða foreldra sína, hafa uppi á fjölskyldum þeirra og sameina þau á ný. Þar sem þess er þörf verður börnunum tryggð örugg tímabundin umönnun.

Neyðin í Nepal og aðgerðir SOS

  • Að minnsta kosti 107 börn kunna að hafa orðið viðskila við foreldra sína eða umönnunaraðila.
  • Unnið er að skráningu barnanna, leit að fjölskyldum þeirra og sameiningu fjölskyldna.
  • Börnum sem ekki er hægt að sameina fjölskyldum sínum strax verður tryggð tímabundin og örugg umönnun.
  • Gert er ráð fyrir að um 40 börn verði tekin í tímabundna umönnun SOS Barnaþorpanna í Nepal í nánu samstarfi við stjórnvöld.
  • Komið verður upp barnvænum svæðum (Child-Friendly Spaces) þar sem börn fá öruggt skjól, stuðning og ráðgjöf. Tvö slík svæði eru þegar í undirbúningi.
  • Veittur verður andlegur stuðningur og ráðgjöf til barna og fjölskyldna sem hafa orðið fyrir áföllum.
  • Neyðaraðstoðin felur einnig í sér matvæli og næringarstuðning, neyðarskýli, hreinlætisaðstöðu og fjárhagsaðstoð.
  • Komið verður upp tímabundinni kennsluaðstöðu svo börn geti snúið aftur til náms þrátt fyrir að skólar hafi skemmst eða eyðilagst.
Eyðileggingin er gríðarleg. Hamfarirnar hafa haft áhrif á líf 1,6 milljóna manna, þar af um 17.000 barna. Eyðileggingin er gríðarleg. Hamfarirnar hafa haft áhrif á líf 1,6 milljóna manna, þar af um 17.000 barna.

SOS Barnaþorpin ætla að setja alls eina milljón evra í neyðaraðgerðirnar frá aðildarlöndum samtakanna. Áætlað er að eyðaraðgerðir SOS muni ná til um sex þúsund íbúa á hamfarasvæðunum á átján mánuðum eða fram í febrúar árið 2028.

Sjá einnig: Börn í Neyð í Nepal

Allir heilir á húfi í barnaþorpunum

Öll börn og fjölskyldur í verkefnum SOS eru heil á húfi og ekk­ert barna­þorp­anna varð fyr­ir beinu tjóni. Um 330 börn í SOS barnaþorpum í Nepal eiga íslenska styrktarforeldra (SOS-foreldra).

Þessi frétt er byggð á upplýsingum frá SOS Barnaþorpunum í Nepal og alþjóðaskrifstofu SOS í Austurríki.

SOS neyðarvinur

SOS neyðarvinur

SOS neyðarvinur

SOS-neyðarvinir styrkja neyðaraðgerðir SOS fyrir börn og fjölskyldur þeirra í stríði og á öðrum hamfarasvæðum. Ágúst 2026: Börn í neyð eft­ir mann­skæð skyndiflóð í Nepal - Júní 2026 - Venesúela: Jarðskjálftar hafa áhrif á þúsundir barna!

Framlögunum er varið í neyðaraðgerðir sem SOS á Íslandi leggur til fjármagn í hverju sinni. Árið 2026 er framlögum íslenskra SOS-neyðarvina varið í neyðaraðgerðir SOS í Nepal, Venesúela, Palestínu, Úkraínu, Líbanon, Súdan, Eþíópíu.

Þú getur annað hvort gefið stakt framlag eða gerst mánaðarlegur neyðarvinur. Athugaðu að þú getur breytt fjárhæðinni með því að velja einn af „styrkja“ kössunum hér að neðan og slá inn upphæðina í reitinn. Lágmarksframlag er 1.000 krónur.

Styrkja 10.000 kr á mánuði Styrkja 5.000 kr á mánuði Styrkja 2.500 kr á mánuði Stakt framlag