Fréttayfirlit 27. ágúst 2026

Börn í neyð eftir mannskæð skyndiflóð í Nepal

Börn í neyð eftir mannskæð skyndiflóð í Nepal

Mikil neyð ríkir í Nepal eftir mannskæð skyndiflóð sem hafa valdið gríðarlegri eyðileggingu. Öll börn og fjölskyldur í verkefnum SOS eru heil á húfi og ekkert barnaþorpanna varð fyrir beinu tjóni. Um 330 börn í SOS barnaþorpum í Nepal eiga íslenska styrktarforeldra (SOS-foreldra).

SOS Barnaþorpin í Nepal hafa ákveðið að hefja neyðaraðgerðir og SOS Barnaþorpin á Íslandi munu senda fjármagn til að styðja við aðgerðirnar. SOS Barnaþorpin á Íslandi hvetja Íslendinga til að leggja neyðaraðgerðunum lið með því að gerast SOS Neyðarvinir. 

SOS Barnaþorpin í Nepal síðan 1972

Framlög Neyðarvina gera samtökunum kleift að bregðast hratt við þegar hamfarir dynja yfir og tryggja börnum og fjölskyldum nauðsynlega aðstoð þegar neyðin er mest. SOS Barnaþorpin hafa starfað í Nepal frá árinu 1972 og starfsemi samtakanna er víðtæk í landinu enda eru þar tíu SOS barnaþorp. 

Flóðin hafa sópað burt heimilum og valdið miklum skemmdum á vegum, brúm, skólum og öðrum mikilvægum innviðum. Fjölskyldur hafa þurft að yfirgefa heimili sín og sums staðar er erfitt að koma hjálpargögnum til þeirra sem þurfa á þeim að halda. Umfang hamfaranna er enn að koma í ljós.

Svona eru neyðaraðgerðir SOS í Nepal

Börn eru sérstaklega berskjölduð í hamförum sem þessum. Þau geta orðið viðskila við foreldra sína, misst heimili sitt og öryggi og þurft að takast á við ótta, sorg og áföll. Aðgangur að hreinu vatni, mat, heilbrigðisþjónustu og skólagöngu hefur jafnframt raskast á hamfarasvæðunum. 

Neyðaraðgerðir SOS munu því leggja sérstaka áherslu á vernd barna og að sameina börn fjölskyldum sínum á ný, auk andlegs stuðnings við börn og fjölskyldur. Þá verður veitt aðstoð með neyðarskýli, mat, hreint vatn, hreinlætisvörur og aðrar brýnustu nauðsynjar. Einnig verður unnið að því að börn geti haldið áfram námi þrátt fyrir hamfarirnar.

SOS neyðarvinur

SOS neyðarvinur

SOS neyðarvinur

SOS-neyðarvinir styrkja neyðaraðgerðir SOS fyrir börn og fjölskyldur þeirra í stríði og á öðrum hamfarasvæðum. Ágúst 2026: Börn í neyð eft­ir mann­skæð skyndiflóð í Nepal - Júní 2026 - Venesúela: Jarðskjálftar hafa áhrif á þúsundir barna!

Framlögunum er varið í neyðaraðgerðir sem SOS á Íslandi leggur til fjármagn í hverju sinni. Árið 2026 er framlögum íslenskra SOS-neyðarvina varið í neyðaraðgerðir SOS í Nepal, Venesúela, Palestínu, Úkraínu, Líbanon, Súdan, Eþíópíu.

Þú getur annað hvort gefið stakt framlag eða gerst mánaðarlegur neyðarvinur. Athugaðu að þú getur breytt fjárhæðinni með því að velja einn af „styrkja“ kössunum hér að neðan og slá inn upphæðina í reitinn. Lágmarksframlag er 1.000 krónur.

Styrkja 10.000 kr á mánuði Styrkja 5.000 kr á mánuði Styrkja 2.500 kr á mánuði Stakt framlag