Fréttayfirlit 19. október 2018

Fátæktin rændi mannvirðingunni

Það er okkur mikilvægt að Fjölskylduvinir SOS Barnaþorpanna á Íslandi séu upplýstir um hvernig framlögum þeirra er ráðstafað og eftirfarandi saga gefur góða mynd af því. Kojo er 14 ára strákur í Eþíópíu sem getur séð fram á bjartari tíma vegna stuðnings Fjölskylduvina SOS á íslandi. En lífið hefur hingað til verið allt annað en dans á rósum hjá Kojo og fjölskyldu hans.

Kojo upplifir reglulega vonleysistilfinningu og gengur hálfs hugar í skólann því honum finnst framtíð fjölskyldunnar vera kortlögð í fátækt. „Stöðug fátækt hefur rænt fjölskyldu mína virðingunni og manneskjulegum gildum. Við lifum við stöðugan skort á öllu. Mamma ræktar korn en nær ekkert að selja það því það fer allt í neyslu fjölskyldunnar. Við erum föst í vítahring.“ segir Kojo.

Dýrmæt fræðsla hjá SOS

Móðir hans, Hawa, er sorgmædd yfir því að börnin hennar tvö, 12 og 14 ára, séu að ganga í gegnum sömu lífsreynslu ogEthiopia_FSP_Tulu Moye_SOS Archives_Kojo (in red) watching his mother Hawa .JPG hún gerði sem barn í fátækri fjölskyldu. Hawa er þó bjartsýn á framtíðina eftir að hafa verið tekin inn í Fjölskyldueflingu SOS Barnaþorpanna þar sem hún fær rekstrarmenntun og hún stefnir á fjárrækt. „Ég hef mikla ástríðu fyrir þannig rekstri því hann er arðbær. Og eftir námskeið í fjármálalæsi á vegum SOS hef ég uppgötvað kostina við sparnað. Ef foreldrar mínir hefðu búið yfir þessari vitneskju á sínum tíma hefði ég ekki þurft að hætta í skóla.“ segir Hawa.

Yfir hálf milljón manna í Fjölskyldueflingu SOS

SOS-fjölskylduvinir fjármagna Fjölskyldueflingu SOS. Hún gengur út á að sárafátækar barnafjölskyldur í nágrenni SOS barnaþorpa fá aðstoð til sjálfshjálpar svo þær getið séð fyrir börnum sínum og mætt grunnþörfum þeirra.

SOS Barnaþorpin á Íslandi fjármagna tvö slík verkefni, annars vegar í Eþíópíu og hins vegar í Perú. Í verkefninu í Tulu Moye í Eþíópíu hjálpum við 567 fjölskyldum og í þeim eru 1609 börn. Í Perú eru fjölskyldur um eitt þúsund barna og ungmenna sem nýta sér aðstoð Fjölskyldueflingar okkar.

Skjólstæðingar Fjölskyldueflingar SOS Barnaþorpanna á heimsvísu eru alls 505,800 talsins í yfir 98 þúsund fjölskyldum. Samtals eru þetta 574 Fjölskyldueflingarverkefni sem eru sérsniðin að aðstæðum á hverjum stað fyrir sig.

Fjölskylduvinir SOS Barnaþorpanna ráða sjálfir upphæðinni sem þeir greiða mánaðarlega til að hjálpa fjölskyldunum í okkar verkefnum. Hér geturðu gerst SOS-fjölskylduvinur.

Ethiopia_FSP_Tulu Moye_SOS Archives_Hawa watches her children wash the handcart.JPG

Nýlegar fréttir

10 milljónir króna til Venesúela - „Við höfum aðeins séð upphaf þessara hörmunga“
16. júl. 2026 Almennar fréttir

10 milljónir króna til Venesúela - „Við höfum aðeins séð upphaf þessara hörmunga“

„Við höfum aðeins séð upphaf þessara hörmunga. Nú fyrst munum við sjá raunverulegu afleiðingarnar,“ segir Ilvania Martins, framkvæmdastjóri SOS Barnaþorpanna í Venesúela eftir jarðskjálftana sem riðu ...

Skemmdir hjá SOS í Úkraínu
2. júl. 2026 Almennar fréttir

Skemmdir hjá SOS í Úkraínu

Skrifstofa SOS Barnaþorpanna í Kænugarði í Úkraínu varð fyrir skemmdum sl. nótt þegar Rússar létu sprengjum rigna yfir borgina. Starfsfólk er óhult.