280 fjölskyldur standa nú á eigin fótum í Malaví
280 fjölskyldur sem tóku þátt í fjölskylduhjálp SOS Barnaþorpanna í Ngabu í Malaví standa nú á eigin fótum. Þær útskrifast því úr þessum fasa verkefnisins eftir fjögurra ára vegferð og starfið heldur áfram. Nýr fasi tekur nú við þar sem fleiri fjölskyldur fá tækifæri til að feta sömu leið – með stuðningi SOS-fjölskylduvina á Íslandi.
Undanfarin fjögur ár hefur verkefnið okkar í Malaví hjálpað fjölskyldum sem búa við mikla fátækt og voru í hættu á að börn þeirra missi umönnun foreldra sinna. Alls tóku 365 fjölskyldur með 1.377 börn þátt í verkefninu í Ngabu í Chikwawa-héraði.
Markmiðið hefur frá upphafi verið skýrt: Ekki að fjölskyldurnar verði háðar aðstoð heldur að þær öðlist þekkingu, tækifæri og verkfæri til að sjá sjálfar fyrir börnum sínum. Fjölskyldurnar fengu stuðning sem tók mið af aðstæðum hverrar þeirra, meðal annars til að afla tekna, bæta uppeldisaðstæður barnanna og takast betur á við áföll á borð við þurrka og náttúruhamfarir.
Rúrik og Jói í Malaví
Í upphafi verkefnistímans heimsótti Rúrik Gíslason, velgjörðasendiherra SOS á Íslandi, Ngabu í Malaví og hitti m.a. nokkrar fjölskyldur sem voru þá að hefja þátttöku í verkefninu. Sjónvarpsþátturinn Rúrik og Jói í Malaví var sýndur í Sjónvarpi Símans og fjallaði hann um heimsókn Rúriks og Jóhannesar Ásbjörnssonar í SOS barnaþorpið í Ngabu. Þáttinn má sjá á YouTube rás SOS Barnaþorpanna á Íslandi.
Sjá einnig: Rúrik heimsótti fjölskyldueflingu í Malaví
Mun fleiri fjölskyldur urðu sjálfbjarga en stefnt var að
Árangurinn er mikill. Upphaflega var stefnt að því að 180 fjölskyldur næðu að standa á eigin fótum. Þegar þessi fasi var gerður upp höfðu 280 fjölskyldur náð því marki. Alls voru 321 fjölskylda jafnframt metin í betri og öruggari stöðu en þegar þær komu inn í verkefnið.
Mikil áhersla var lögð á að fjölskyldurnar gætu sjálfar aflað tekna. Foreldrar fengu meðal annars þjálfun í rekstri, landbúnaði, búfjárrækt, sparnaði og fjármálum. Sparnaðar- og lánahópar voru byggðir upp og fjölskyldum hjálpað að koma af stað eigin atvinnustarfsemi. Í lok tímabilsins höfðu 280 fjölskyldur nægar tekjur til að mæta grunnþörfum barna sinna.
Ariannes er fimm barna einstæða húsmóðir sem var nýútskrifuð úr fjölskyldueflingu í Ngabu þegar okkar verkefni hófst þar.
Börnin njóta ávinningsins
Bætt afkoma fjölskyldnanna er þó aðeins hluti árangursins. Alls voru 1.017 börn og ungmenni í námi eða starfsþjálfun í lok árs 2025 og sérstök átaksverkefni hjálpuðu 263 börnum að snúa aftur í skóla. Þá öðluðust yfir 90 ungmenni starfsmenntun og 42 þeirra voru þegar farin að afla tekna með nýrri kunnáttu sinni.
Foreldrar fengu einnig stuðning við jákvæðar uppeldisaðferðir og staðbundin barnavernd var styrkt. Samfélögin eru því betur í stakk búin til að bregðast við þegar börn verða fyrir ofbeldi, vanrækslu eða annarri hættu.
Sjá líka: Saumavél bjargaði fjölskyldunni
Nú fá fleiri fjölskyldur sama tækifæri
Þetta þýðir ekki að fjölskylduhjálp SOS Barnaþorpanna í Malaví sé lokið. Þvert á móti. Þegar ein fjölskylda stendur á eigin fótum skapast tækifæri til að hjálpa þeirri næstu.
Nýr fasi tekur við fyrir árin 2026–2029. Áfram verður unnið með fjölskyldum í Ngabu en jafnframt stefnt að því að ná til fleiri fjölskyldna og nýrra samfélaga. Einnig verður byggt áfram á því sem hefur gefist vel og staðbundin samtök styrkt svo árangurinn haldi áfram að skila sér til barna og fjölskyldna til framtíðar.
Þökk sé SOS-fjölskylduvinum á Íslandi geta fleiri fjölskyldur nú hafið sömu vegferð – út úr fátækt og í átt að sjálfstæði, öryggi og betri framtíð fyrir börnin sín.
SOS fjölskylduvinur
SOS fjölskylduvinur
SOS-fjölskylduvinir koma í veg fyrir að börn verði vanrækt og yfirgefin. Sem SOS-fjölskylduvinur tekurðu fyrstu skrefin með fjölskyldum út úr sárafátækt svo þær getið staðið á eigin fótum og veitt börnunum bjarta framtíð. Þú ákveður styrktarupphæðina og færð reglulega uppýsingar um verkefnin sem við fjármögnum með þinu framlagi. Svona 20-faldast framlagið þitt!