SOS sögur 23.maí 2022

Saumavél bjargaði fjölskyldunni

Saumavél bjargaði fjölskyldunni

SOS Barnaþorpin á Íslandi settu nýlega á laggirnar fjölskyldueflingarverkefni í Rúanda og Malaví og bætast þau við sambærilegt verkefni sem við höfum starfrækt í Eþíópíu síðan 2018. Í Malaví er fjölskyldufeflingin okkar í nágrenni barnaþorpsins í Ngabu og í þessum bæ sem er syðst í Malaví er komin góð reynsla á slíkt verkefni sem rekið var af SOS í Noregi.

Stundum ein máltíð á dag

Á ferð okkar til Malaví fyrr á árinu hittum við Ariannes, fimm barna einstæða húsmóður, sem er nýútskrifuð úr fjölskyldueflingu í Ngabu. Fjölskyldan var á mörkum þess að leysast upp áður en fjölskyldueflingin kom til sögunnar.

 „Ég gat ekki séð fyrir börnunum og sent þau í skóla. Hér verður reglulega uppskerubrestur og börnin fengu stundum aðeins eina máltíð á dag. Eitt barnanna minna er fatlað og átti sérstaklega erfitt því við áttum ekki öruggan samastað,” segir Ariannes en með aðstoð fjölskyldueflingarinnar varð alger viðsnúningur á lífi fjölskyldunnar. 

Ariannes er fær saumakona og kaup á einni saumavél áttu eftir að gerbreyta lífi fjölskyldunnar. Ariannes er fær saumakona og kaup á einni saumavél áttu eftir að gerbreyta lífi fjölskyldunnar.

Börnunum forðað frá vændi

Ariannes er hæfileikarík saumakona og eftir að henni var hjálpað að kaupa saumavél fór hún að afla tekna. Hún hafði loks efni á að kaupa mat og skólagögn fyrir börnin og eignaðist eigið húsnæði.

Þessi smávægilega aðstoð er miklu stærri en hún virðist í fyrstu eins og Ariannes útskýrir. „Það sem fjöslkyldueflingin gerði fyrir okkur var að koma í veg fyrir að börnin hætti í skóla, að þau myndu svelta og mjög líklega leiðast út í vændi. Það eru því miður örlög margra barna hér á þessu svæði,” segir Ariannes en meðal afleiðinga vændis er mikil útbreiðsla HIV tilfella með tilheyrandi dauðsföllum og eftir standa munaðarlaus börn.

13.500 börn að verða munaðarlaus?

Charles Mthengomwacha, verkefnisstjóri fjölskyldueflingarinnar sem SOS á Íslandi rekur skammt frá, undirstrikar hversu stórt þetta vandamál er. „Aðeins hér á Ngabu svæðinu eru 13.500 börn í raunverulegri hættu á að verða munaðarlaus."

Takk Íslendingar

Ariannes vildi að lokum koma á framfæri þakklæti til Íslendinga sem styðja við fjölskyldueflinguna. Hún lítur nú björtum augum til framtíðar. „Ég finn mikið öryggi í því að búa í eigin húsnæði og ég afla tekna með saumamennskunni. Börnin fá að borða og þau sækja skóla.”

Viðtal: Hans Steinar Bjarnason
Ljósmyndir: Jón Ragnar Jónsson

Skólaganga barna er alger lykilþáttur í að rjúfa vítahring fátæktar. Ariannes hefur nú efni á að senda börnin sín í skóla. Skólaganga barna er alger lykilþáttur í að rjúfa vítahring fátæktar. Ariannes hefur nú efni á að senda börnin sín í skóla.
Mjög algengt er að börn og ungar stúlkur endi í vændi í Ngabu. Meðal afleiðinga vændis er fjölgun HIV tilfella með tilheyrandi dauðsföllum og eftir standa munaðarlaus börn. Mjög algengt er að börn og ungar stúlkur endi í vændi í Ngabu. Meðal afleiðinga vændis er fjölgun HIV tilfella með tilheyrandi dauðsföllum og eftir standa munaðarlaus börn.
SOS fjölskylduvinur

Gerast SOS fjölskylduvinur

SOS fjölskylduvinur

Sem SOS-fjölskylduvinur kemurðu í veg fyrir að börn verði vanrækt og yfirgefin. Í fjölskyldueflingu SOS tökum við fyrstu skrefin með fjölskyldum út úr sárafátækt svo þær getið staðið á eigin fótum og veitt börnunum bjarta framtíð. Þú ákveður styrktarupphæðina og færð reglulega uppýsingapóst um verkefnin sem við fjármögnum.

Mánaðarlegt framlag
1.500 kr 2.500 kr 5.000 kr 7.500 kr