Fréttayfirlit 29. desember 2021

SOS Ísland með fjölskyldueflingu í Malaví

SOS Ísland með fjölskyldueflingu í Malaví

Ný fjölskylduefling hefst á næstunni í Malaví sem SOS Barnaþorpin á Íslandi eru í ábyrgð fyrir. Markmið fjölskyldueflingar SOS er að forða börnum frá aðskilnaði við illa stadda foreldra sína og styðja fjölskylduna til fjárhagslegs sjálfstæðis. Verkefnið er fjármagnað af SOS á Íslandi með stuðningi Utanríkisráðuneytisins.

Bein hjálp við 1500 börn og fjölskyldur þeirra

Fjölskyldueflingin í Malaví er í Ngabu í Chikwawa héraði og nær beint til 1500 barna og ungmenna í 400 fjölskyldum sem fá ekki grunnþörfum sínum mætt vegna bágra aðstæðna foreldra þeirra eða forráðamanna. 15 þúsund skólabörn af 500 heimilum munu einnig óbeint njóta góðs af verkefninu út árið 2024 því verkefnið mun styðja við afar veikbyggða innviði samfélagsins á staðnum.

Fjölskyldurnar fá aðstoð í formi menntunar, heilsugæslu, ráðgjafar, barnagæslu og annarra þátta sem hjálpa þeim að yfirstíga erfiðleika og lifa betra lífi sem fjölskylda. Foreldrar fá aðstoð til að afla sér tekna og meðal úrræða er að veita þeim vaxtalaus smálán eins og reynst hefur vel í verkefni okkar í Eþíópíu.

Myndirnar sem fylgja þessari frétt eru frá heimsókn Rúriks Gíslasonar, velgjörðasendiherra SOS á Íslandi, á verkefnasvæði fjölskyldueflingar okkar í Ngabu.

Yfir 21 milljón búa í þessu litla landi og yfirvöld ráða illa við afleiðingar mannfjölgunarinnar sem er ein sú hraðasta í heimi. Yfir 21 milljón búa í þessu litla landi og yfirvöld ráða illa við afleiðingar mannfjölgunarinnar sem er ein sú hraðasta í heimi.

Helmingur Malava undir fatæktarmörkum

Malaví er lítið land í sunnanverðri Afríku þar sem mannfjöldi er áætlaður um 21,2 milljónir. Landið er meðal þeirra síst þróuðu í heimi en talið er að rúmlega helmingur íbúa búi undir fátæktarmörkum, þ.e. lifi af á undir einum dollara á dag og einni máltíð á dag.

Malavíska þjóðin er mjög ung en um 51% hennar er 18 ára og yngri. Um 3% árleg aukning er á mannfjölda í Malaví sem er ein mesta árlega aukningin á heimsvísu.

15% barna hafa misst báða foreldra sína

Í Chikwawa héraði þar sem SOS á Íslandi er með fjölskyldueflinguna búa um 150 þúsund manns. Um 15% barna undir 18 ára aldri á svæðinu hafa misst báða foreldra sína og 11% hafa misst annað foreldrið.

Innviðir á svæðinu eru takmarkaðir og og til marks um það má nefna að árið 2018 var sjúkdómstíðni 50% og meðalfjöldi nemenda í kennslustund var 107. Brottfall barna í grunnskólum er 3,1%. Þegar foreldrar veikjast geta þeir ekki aflað tekna og börnin hætta því í skóla til að geta aflað tekna fyrir fjölskylduna.

Eftirlit frá Íslandi

SOS Barnaþorpin á Íslandi hafa um langt skeið unnið að undirbúningi þessa verkefnis ásamt heimamönnum í Malaví og álfuskrifstofu SOS sem staðsett er í Addis Ababa í Eþíópíu. Verkefnið sjálft er unnið af heimamönnum en mánaðarlegir fjarfundir fara fram með SOS á Íslandi þar sem farið verður yfir framvindu verkefnisins hverju sinni, árangur og áskoranir. Einnig verður farið í eftirlitsferðir á vettvang eftir því sem aðstæður leyfa.

Mikil áunnin þekking

Innanhússþekking okkar og reynsla frá fyrri verkefnum kemur að miklu gagni. SOS á Íslandi ber ábyrgð á öðru slíku verkefni í Eþíópíu með góðum árangri og hefur aukinheldur haldið upp slíkum verkefnum í Gíneu Bissá og á Filippseyjum. Þá höfum við einnig tekið þátt í fjármögnun slíkra verkefna í Perú og Venesúela.

SOS Barnaþorpin hafa starfað í Malaví frá árinu 1986 og reka þar fjögur barnaþorp og sjá hundruðum munaðarlausra og yfirgefinna barna fyrir fjölskyldum og heimilum. SOS Barnaþorpin hafa starfað í Malaví frá árinu 1986 og reka þar fjögur barnaþorp og sjá hundruðum munaðarlausra og yfirgefinna barna fyrir fjölskyldum og heimilum.

Þú getur tekið þátt

Fjöslkyldueflingin í Malaví er til fjögurra ára og er heildarkostnaður verkefnisins 844.386 evrur sem á gengi dagsins í dag eru um 125 milljónir króna. Hluti af þessum kostnaði verður dekkaður með stuðningi Utanríkisráðuneytisins í formi rammasamnings. Almenningur getur tekið þátt í að styrkja fjölskyldueflinguna með því að gerast SOS-fjölskylduvinur og greiða mánaðarlegt framlag að eigin vali. SOS-fjölskylduvinir fá reglulega fréttir af gangi mála á verkefnasvæðunum okkar í fjölskyldueflingunni.

Fjögur SOS barnaþorp í Malaví

SOS Barnaþorpin hafa starfað í Malaví frá árinu 1986 og reka þar fjögur barnaþorp og sjá hundruðum munaðarlausra og yfirgefinna barna fyrir fjölskyldum og heimilum. Samtökin hafa unnið mörg sambærileg fjölskyldueflingarverkefni með góðum árangri í Ngabu frá 2016.

Nýlegar fréttir

Framboð til stjórnar SOS Barnaþorpanna
12. apr. 2024 Almennar fréttir

Framboð til stjórnar SOS Barnaþorpanna

Aðalfundur samtakanna verður haldinn mánudaginn 13. maí kl. 17:30 í safnaðarheimili Kópavogskirkju. Tilnefningarnefnd SOS Barnaþorpanna óskar nú eftir tillögum um framboð til stjórnar.

Að gefnu tilefni vegna Heru Bjarkar
4. apr. 2024 Almennar fréttir

Að gefnu tilefni vegna Heru Bjarkar

Nokkuð hefur verið um það undanfarið að SOS Barnaþorpin á Íslandi fái skilaboð frá fólki sem lýsir vanþóknun sinni á samstarfi samtakanna við söngkonuna Heru Björk Þórhallsdóttur og þess jafnvel krafi...