Frétta­yf­ir­lit 28. janú­ar 2019

Yfir 20 millj­ón­ir í að­stoð frá Ís­landi vegna flótta­fólks frá Venesúela

SOS Barna­þorp­in á Ís­landi hafa með stuðn­ingi Ut­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins ákveð­ið að að­stoða flótta­fjöl­skyld­ur frá Venesúela í Kól­umb­íu. Ráðu­neyt­ið styrk­ir mann­úð­ar­verk­efni SOS um tæpa 19 og hálfa millj­ón króna og er mót­fram­lag SOS rúm ein millj­ón króna.

TAKA ÞÁTT Í MÓTFRAMLAGI SOS Á ÍSLANDI

Um þrjár millj­ón­ir Venesúela­manna hafa flú­ið heima­land­ið þar sem óstjórn rík­ir og óða­verð­bólga ger­ir það að verk­um að fólk á ekki fyr­ir lífs­nauð­synj­um.

Kól­umbía er orð­inn fjöl­menn­asti áfanga­stað­ur flótta­fólks­ins frá Venesúela sem tal­ið er að sé um ein millj­ón tals­ins og þús­und­ir koma yfir landa­mær­in á degi hverj­um.

Ís­land er nú í hópi Evr­ópu­landa eins og Spáni, Nor­egi, Dan­mörku og Lúx­em­borg sem fjár­magna þessa mann­úð­ara­stoð SOS Barna­þorp­anna. Neyð­ar­ástand rík­ir við landa­mær­in í Kól­umb­íu og stýra SOS Barna­þorp­in í Kól­umb­íu að­gerð­um þar.

Þetta til­tekna að­stoð­ar­verk­efni nær til yfir tíu þús­und manna í um 2,500 fjöl­skyld­um á 10 mán­aða tíma­bili. Í að­stoð­inni felst með­al ann­ars vernd, mat­væla­ör­yggi og upp­setn­ing ör­uggra svæða fyr­ir fjöl­skyld­ur þar sem þær fá að­stoð og ráð­gjöf ásamt því sem börn­in fá tæki­færi til leikja og mennt­un­ar.

Þú get­ur hjálp­að

Eins og áður seg­ir er mót­fram­lag SOS Barna­þorp­anna á Ís­landi rúm ein millj­ón króna vegna neyð­ar­að­stoð­ar­inn­ar í Kól­umb­íu og því hvetj­um við al­menn­ing til að styðja okk­ur með frjáls­um fram­lög­um.

Það er hægt að gera með því að leggja inn á reikn­ing 0334-26-52075, kt. 500289- 2529.

Einnig er hægt að styrkja sam­tök­in með því að hringja í 907-1001 (1.000 kr.) eða 907-1002 (2.000 kr.)

Heimsmarkmiðin.jpg

Áhersluatriði ársins 2019 í barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna er „börn án foreldraumsjár“ sem SOS Barna­þorp­in sér­hæfa sig ein­mitt í. SOS Barna­þorp­in upp­fylla heims­markmið Sam­ein­uðu þjóð­anna núm­er 1, 4, 8, 10 og 16 að fullu og markmið núm­er 3,5 og 17 að hluta. Neyð­ar­að­stoð­in fyr­ir flótta­fjöl­skyd­urn­ar frá Venesúela nær til heims­mark­miða nr. 1, 2, 3, 4 og 6.

UTN_Ragnar og Ágúst.jpg

Ragn­ar Schram, fram­kvæmda­stjóri SOS Barna­þorp­anna á Ís­landi og Ág­úst Már Ág­ústs­son, sér­fræð­ing­ur hjá Ut­an­rík­is­ráðu­neyt­inu, und­ir­rit­uðu samn­ing vegna styrks­ins í dag.

Ný­leg­ar frétt­ir

855 krónur af hverju þúsund króna framlagi renna í hjálparstarfið
23. maí 2025 Al­menn­ar frétt­ir

855 krón­ur af hverju þús­und króna fram­lagi renna í hjálp­ar­starf­ið

Árs­skýrsla SOS Barna­þorp­anna fyr­ir árið 2024 hef­ur nú ver­ið birt eft­ir að­al­fund sam­tak­anna 19. maí sl. Þar kem­ur m.a. fram að hlut­fall rekstr­ar­kostn­að­ar er með því allra lægsta sem ger­ist eða að­eins 1...

23 milljónum króna af erfðagjöf ráðstafað til háskólamenntunar
22. maí 2025 Erfða­gjaf­ir

23 millj­ón­um króna af erfða­gjöf ráð­staf­að til há­skóla­mennt­un­ar

SOS Barna­þorp­in á Ís­landi hafa ráð­staf­að 23 millj­ón­um króna af erfða­gjöf til há­skóla­mennt­un­ar ung­menna í Afr­íku, nán­ar til­tek­ið í Rú­anda. Ráð­stöf­un­in er sam­kvæmt ósk­um arf­leif­anda, Bald­vins Leifs­son­ar...