Fréttayfirlit 10. júní 2016

Verkefnið „Læsi á opnu svæði“ nýtur velgengni í Kenía

Læsi á opnu svæði (e. Open Space Literacy Project (OSL)) er verkefni sem SOS Barnaþorpin settu á fót ásamst Plan International og öðrum samstarfsaðilum árið 2015. Tilgangurinn er að auka læsi í barnaskólum á fátækum svæðum í Kenía með tækni, en 1/3 ungs fólks á aldrinum 15-19 ára í landinu er ólæs vegna lélegra aðstæðna til menntunar.  

OSL aðferðin nýtir ódýran og orkuvænan búnað. Í hverri kennslustofu eru 2-5 fartölvur sem þurfa litla orku og nýtast bæði til að þjálfa kennara og nemendur. Einnig fylgja farsímar sem notaðir eru til að skoða kennsluefni, myndvarpi 

og hátalarar svo að allur bekkurinn geti tekið þátt þegar tölvurnar eru notaðar, krítartafla, prik og sólarsellur ef þörf er á. Búnaðinn er auðvelt að flytja milli kennslustofa og því getur allur skólinn notið góðs af tækninni. Með búnaðinum fylgir námskeið fyrir kennara svo tækninýjungin nýtist sem best.

OSL.jpg

Kostir verkefnisins eru margir. Hér eru nokkur dæmi:

  • Börn fá aðgang að gæðamenntun á mismunandi tungumálum í gegnum tölvur og síma.
  • Tæknin gefur nemendum færi á að læra á eigin forsendum og gefur þeim betri endurgjöf, jafnvel í yfirfullum kennslustofum.
  • Oft er skortur á skólabókum í skólum á fátækum svæðum. Í þeim tilfellum má nota myndvarpa til að deila kennsluefninu með öllum bekknum.
  • Kennarar geta fylgst með hverjum og einum nemenda í gegnum einfalt tölvuforrit.
  • Kennarar nota víxlverkandi kennsluaðferðir og innleiða kerfi þar sem kynjajafnrétti er virt og jákvæðar agareglur eru nýttar.
  • Í dag hefur verkefnið verið innleitt í einum Hermann Gmeiner skóla í barnaþorpi þar í landi auk 27 annarra opinberra grunnskóla. Takmarkið er  að ná til 300 skóla í Kenía.

 

Mjög góð útkoma úr verkefninu

kennsla.jpg

Hlutlaust mat frá Women Educational Researchers of Kenya (WERK) á verkefninu sýndi að nemendur sem nýttu þessa nýju tækni höfðu betri lestrarkunnáttu en jafnaldrar sem ekki nýttu tæknina. Matið sýndi einnig að mæting þeirra nemenda sem höfðu aðgang að tækninni var mun betri en mæting annarra nemenda.

Kennaraþjálfunin sýndi einnig góða niðurstöðu. Kennarar sem aldrei höfðu notað tölvur eða aðra tækni sem fylgir verkefninu geta nú auðveldlega notað tæknina. Einnig nota nú um 80% kennara í skólunum víxlverkandi kennsluaðferðir  sem miða að aukinni þátttöku allra nemenda í umræðum og verkefnaúrlausnum.  

Nýlegar fréttir

Ísland styrkir aftur sumarbúðir fyrir stríðshrjáð börn í Úkraínu
6. ágú. 2026 Almennar fréttir

Ísland styrkir aftur sumarbúðir fyrir stríðshrjáð börn í Úkraínu

SOS Barnaþorpin á Íslandi hafa sent fjárstuðning til sumarbúða í Úkraínu fyrir börn sem hafa orðið fyrir alvarlegum áhrifum af stríðinu. Þar taka börnin þátt í fjölbreyttu starfi sem hjálpar þeim að v...

Tvær og hálf milljón króna til stuðnings viðkvæmum barnafjölskyldum í Namibíu
5. ágú. 2026 Fjölskylduefling

Tvær og hálf milljón króna til stuðnings viðkvæmum barnafjölskyldum í Namibíu

SOS Barnaþorpin á Íslandi hafa sent 2,5 milljónir króna til verkefnis í fjölskyldueflingu SOS í Namibíu. Verkefnið er unnið til eflingar viðkvæmum barnafjölskyldum og kemur í veg fyrir að þær sundrist...