Venesúela: Jarðskjálftar hafa áhrif á þúsundir barna
Öflugir jarðskjálftar hafa riðið yfir Venesúela með þeim afleiðingum að þúsundir manna hafa orðið fyrir áhrifum og tala látinna hækkar. Börnin og starfsfólkið í SOS barnaþorpunum í Venesúela eru óhult en reynslan hefur tekið á. 62 börn í barnaþorpum í Venesúela eiga styrktarforeldra á Íslandi, þ.e.a.s. SOS foreldra.
Fjölskyldur hafa misst heimili sín og börn eru í brýnni þörf fyrir vernd, mat og hreint drykkjarvatn. Mörg börn hafa orðið viðskila við fjölskyldur sínar og eru í aukinni hættu. Því er lífsnauðsynlegt að finna þau, vernda þau og sameina fjölskyldur á ný.
Vertu SOS neyðarvinur og styrktu starf SOS í Venesúela
SOS Barnaþorpin á Íslandi ætla að senda fjármagn til neyðaraðgerða SOS í Venesúela. Fólki á Íslandi gefst kostur á að styrkja starfsemi SOS í Venesúela með því að gerast SOS neyðarvinur. Hægt er að greiða stakt eða mánaðarlegt framlag. Ljóst er að framundan er langt uppbyggingarstarf í Venesúela.
Talið er að bæði mannfall og eignatjón sé mjög umfangsmikið. segir einn samstarfsmaður okkar hjá SOS Barnaþorpunum í Venesúela.
SOS Barnaþorpin eru með starfsemi á þremur stöðum í Venesúela.
Skjót viðbrögð skipta sköpum
Nú beinist áhersla okkar að því að:
- finna börn sem hafa orðið viðskila við fjölskyldur sínar, tryggja þeim vernd og sameina fjölskyldur á ný,
- veita sálfélagslegan stuðning,
- koma upp tímabundnu húsnæði og útvega neyðaraðstoð á borð við matarpakka, hreint drykkjarvatn og peningaaðstoð,
- skapa örugg svæði og tímabundið námsumhverfi þar sem börn geta haldið áfram að leika sér, læra og endurheimta öryggiskennd sína.
Starfsemi SOS skammt frá upptökum skjálftans
SOS Barnaþorpin hafa starfað í Venesúela í nærri 50 ár og eru með starfsemi á þremur stöðum í landinu. Eitt barnaþorpanna er í Maracay, skammt frá upptökum skjálftanna. Börnin og starfsfólkið eru óhult, þótt reynslan hafi verið erfið. Við fylgjumst grannt með þróun mála og aðlögum starf okkar eftir þörfum til að geta stutt börn og fjölskyldur með sem bestum hætti.
SOS neyðarvinur
SOS neyðarvinur
SOS-neyðarvinir styrkja neyðaraðgerðir SOS fyrir börn og fjölskyldur þeirra í stríði og á öðrum hamfarasvæðum. Júní 2026: Venesúela: Jarðskjálftar hafa áhrif á þúsundir barna! Framlögunum er varið í neyðaraðgerðir samtakanna sem SOS á Íslandi tekur þátt í að fjármagna hverju sinni. Árið 2026 er framlögum íslenskra SOS-neyðarvina varið í neyðaraðgerðir SOS í Venesúela, Palestínu, Úkraínu, Líbanon, Súdan, Eþíópíu.
Þú getur annað hvort gefið stakt framlag eða gerst mánaðarlegur neyðarvinur. Athugaðu að þú getur breytt fjárhæðinni með því að velja einn af „styrkja“ kössunum hér að neðan og slá inn upphæðina í reitinn. Lágmarksframlag er 1.000 krónur.