Fréttayfirlit 4. október 2016

Varúðarráðstafanir SOS í Haítí vegna fellibylsins Matthew

Fellibylurinn Matthew skall á Haítí fyrr í dag og flóð vegna bylsins hefur haft áhrif á samfélög í Haítí yfir helgina. SOS Barnþorpin hafa haft starfsemi í landinu síðastliðin 38 ár og hófu varúðarráðstafanir vegna fellibylsins fyrir helgi.

Frá því a föstudag hefur SOS í Haítí veitt samfélögum á hættusvæðum upplýsingar um styrk fellibylsins. Á laugardaginn hófu SOS-mæður að safna matarbirgðum.

Stjórnvöld hafa ákveðið að  allir skólar verði lokaðir á mánudag, þriðjudag og jafnvel miðvikudag. Einnig hafa yfirvöld beðið skóla um að vera til taks ef nýta þarf þá sem neyðarskýli. SOS hefur undirbúið skóla á sínum vegum eftir því.

Eins og staðan er núna hefur ekki þurft að rýma Barnaþorp SOS í landinu en samtökin eru viðbúin að hjálpa samfélögum í kring og vinna með öðrum félagasamtökum á svæðinu.

Nýlegar fréttir

Gleðitár flæddu þegar Hafdís og Ambika hittust loksins
5. okt. 2026 Almennar fréttir

Gleðitár flæddu þegar Hafdís og Ambika hittust loksins

Tilfinningaþrungin stund var á skrifstofu SOS Barnaþorpanna á Íslandi og gleðitárin flæddu þegar Ambika Sharma og Guðrún Hafdís Karlsdóttir hittust loks, 33 árum eftir að Hafdís gerðist styrktarforeld...

Svona tuttugufaldast framlagið þitt
2. okt. 2026 Fjölskylduvinir

Svona tuttugufaldast framlagið þitt

Þegar þú gefur fjárframlög til góðgerðarmála verður til það sem kallað er félagsleg arðsemi af framlögunum þínum. Í skýrslunni 75 Years Of Impact sem gerð var í tilefni af 75 ára afmæli SOS Barnaþorpa...