Fréttayfirlit 7. mars 2025

Utanríkisráðherra gerði rammasamning við SOS

Utanríkisráðherra gerði rammasamning við SOS

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra skrifaði á mánudaginn undir rammasamning við SOS Barnaþorpin til fjögurra ára. Framlög ráðuneytisins til SOS á þessu tímabili nema samtals 689 milljónum króna og verður þeim varið í þróunarsamvinnuverkefni, mannúðaraðstoð og kynningar- og fræðsluverkefni.

Samningurinn kveður jafnframt á um mótframlag í hvert verkefni frá SOS Barnaþorpunum á Íslandi. Verkefni SOS sem verða styrkt á þessu ári með þessum fjármunum eru fjölskylduefling í Malaví, Rúanda, Eþíópíu og Úganda auk verkefnis okkar sem vinnur gegn kynferðislegri misneytingu á börnum í Tógó. Einnig verður fjármunum varið í mannúðarverkefni SOS síðar á árinu.

SOS Barnaþorpin eru ein af fjórum félagasamtökum á Íslandi sem stóðust formkröfur fyrir rammasamningana. Hin samtökin eru Rauði krossinn, Hjálparstarf kirkjunnar og Barnaheill – Save the Children. Ragnar Schram framkvæmdastjóri skrifaði undir samninginn við utanríkisráðherra fyrir hönd SOS Barnaþorpanna.

Frá vinstri: Sólrún María Ólafsdóttir (RKÍ), Ósk Sturludóttir (UTN), Ragnar Schram (SOS Barnaþorpin), Kristín Ólafsdóttir (Hjálparstarf kirkjunnar), Bjarni Gíslason (Hjálparstarf kirkjunnar), Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (utanríkisráðherra), Tótla Sæmundsdóttir (Barnaheill), Silja Bára Ómarsdóttir (RKÍ), Kolbrún Pálsdóttir (Barnaheill), Pálína B. Matthíasdóttir (UTN), Gísli Rafn Ólafsson (RKÍ), Kolbeinn Arnarson (UTN). - Myndir: Utanríkisráðuneytið. Frá vinstri: Sólrún María Ólafsdóttir (RKÍ), Ósk Sturludóttir (UTN), Ragnar Schram (SOS Barnaþorpin), Kristín Ólafsdóttir (Hjálparstarf kirkjunnar), Bjarni Gíslason (Hjálparstarf kirkjunnar), Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (utanríkisráðherra), Tótla Sæmundsdóttir (Barnaheill), Silja Bára Ómarsdóttir (RKÍ), Kolbrún Pálsdóttir (Barnaheill), Pálína B. Matthíasdóttir (UTN), Gísli Rafn Ólafsson (RKÍ), Kolbeinn Arnarson (UTN). - Myndir: Utanríkisráðuneytið.

Til marks um traust og gott samstarf

Rammasamningar styrkja starf íslenskra félagasamtaka í þróunarsamvinnu og mannúðaraðstoð, auka fyrirsjáanleika og gera þeim kleift að skipuleggja starfið til lengri tíma. Samningarnir styðja við gildi íslenskrar þróunarsamvinnu: útrýmingu fátæktar, mannréttindi, jafnrétti kynjanna og aukið viðnámsþol samfélaga.

Þessir samningar eru til marks um það traust og góða samstarf sem utanríkisráðuneytið hefur átt við félagasamtök í þróunarsamvinnu. Það er í dag mikilvægara en nokkur sinni fyrr að við stöndum vörð um mannréttindi og okkar áherslur í þróunarsamvinnu. Því er svo mikilvægt að við vinnum saman og við sjáum fram á náið samstarf næstu fjögur árin. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra

Nýlegar fréttir

Gleðitár flæddu þegar Hafdís og Ambika hittust loksins
5. okt. 2026 Almennar fréttir

Gleðitár flæddu þegar Hafdís og Ambika hittust loksins

Tilfinningaþrungin stund var á skrifstofu SOS Barnaþorpanna á Íslandi og gleðitárin flæddu þegar Ambika Sharma og Guðrún Hafdís Karlsdóttir hittust loks, 33 árum eftir að Hafdís gerðist styrktarforeld...

Svona tuttugufaldast framlagið þitt
2. okt. 2026 Fjölskylduvinir

Svona tuttugufaldast framlagið þitt

Þegar þú gefur fjárframlög til góðgerðarmála verður til það sem kallað er félagsleg arðsemi af framlögunum þínum. Í skýrslunni 75 Years Of Impact sem gerð var í tilefni af 75 ára afmæli SOS Barnaþorpa...