Fréttayfirlit 5. júní 2018

Ungar stúlkur á Reyðarfirði söfnuðu fyrir SOS Barnaþorpin

Þessar góðhjörtuðu ungu stúlkur á Reyðarfirði, Emilía Rós Ingimarsdóttir og Júlía Sigríður Grzegorzsdóttir, höfðu samband við okkur í vikunni. Vinkonurnar, sem eru á níunda aldursári, vildu láta gott af sér leiða og söfnuðu dósum sem þær fengu 12,756 krónur fyrir. Peninginn sendu þær svo til SOS Barnaþorpanna og var upæhæðinni varið í fjölskyldueflingarverkefnið sem hófst í Eþíópíu í janúar sl.

Peningarnir koma að góðum notum fyrir skjólstæðinga fjölskyldueflingarinnar í þorpinu Tulu Moye. Þar búa m.a. systkinin Mena sem er 18 ára og eldri bróðir hennar Tee ásamt tveimur ungum systskinum sínum og eins árs gömlu barni Menu. Móðir þeirra er látin og faðir þeirra yfirgaf þau.

Með hjálp góðhjartaðs fólks eins og Emilíu og Júlíu geta skjólstæðingar fjölskyldueflingar SOS Barnaþorpanna, umkomulaus börn, nú fengið mat á hverjum degi og aðstoð til að búa sig undir framtíðina.

Emilía og Júlía eru nú orðnir fjölskylduvinir SOS Barnaþorpanna og þökkum við þeim kærlega fyrir þetta frábæra framtak. Það geta allir gerst fjölskylduvinir hér inni á heimasíðunni okkar sos.is.

Nýlegar fréttir

Skemmdir hjá SOS í Úkraínu
2. júl. 2026 Almennar fréttir

Skemmdir hjá SOS í Úkraínu

Skrifstofa SOS Barnaþorpanna í Kænugarði í Úkraínu varð fyrir skemmdum sl. nótt þegar Rússar létu sprengjum rigna yfir borgina. Starfsfólk er óhult.

Venesúela: Jarðskjálftar hafa áhrif á þúsundir barna
26. jún. 2026 Almennar fréttir

Venesúela: Jarðskjálftar hafa áhrif á þúsundir barna

Öflugir jarðskjálftar riðu yfir Venesúela með þeim afleiðingum að þúsundir manna hafa orðið fyrir áhrifum. Börnin og starfsfólkið í SOS barnaþorpunum í landinu eru óhult en lífsreynslan hefur tekið á....