Tíu milljónir í neyðaraðstoð SOS í Írak
SOS Barnaþorpin á Íslandi hafa ráðstafað tíu milljónum króna í neyðaraðstoð samtakanna í Írak en í verkefninu er áhersla lögð á aðstoð við barnafjölskyldur á flótta. Aðstoðin beinist sérstaklega að börnum, ungmennum og konum en einnig hafa munaðarlaus börn fengið ný heimili í SOS Barnaþorpum í landinu.
Helstu verkefni neyðaraðstoðar SOS Barnaþorpanna í Írak eru:
-Áfalla- og sálfræðimeðferð
-Fjárhagsleg aðstoð
-Barnvæn svæði þar sem börn geta leikið sér við önnur börn, fengið að borða og tekið þátt í verkefnum á vegum SOS. Einnig hafa samtökin komið upp samfélagsmiðstöðvum fyrir foreldra þar sem þeir geta sótt námskeið, hlustað á tónlisti eða spjallað við aðra foreldra.
-Fræðsla á mannréttindum. Það verkefni er sérstaklega miðað við konur og börn af Jasída trúarhópnum.
Önnur verkefni neyðaraðstoðarinnar eru dreifing matvæla, heilbrigðisþjónusta, lögfræðiaðstoð, sameining fjölskyldna og menntun.
Árið 2014 náði Íslamska ríkið yfirráðum yfir stórum hluta Íraks sem hefur síðan þá valdið mikilli neyð. Fólksflótti hefur aukist gríðarlega en samkvæmt Sameinuðu þjóðunum eru tíu milljónir manna í þörf fyrir neyðaraðstoð í landinu. Í Mósúl er ástandið hve verst en á undanförnum mánuðum hefur Íraksher herjað á höfuðvígi Íslamska ríkisins í Mósúl, sem hefur valdið miklu mannfalli meðal almennings.
Fólk af Jasída trúarhópnum er í mikilli hættu þar sem hópurinn hefur orðið skotspónn vígamannanna. Ekki er ljóst hve margir Jasídar búa nú í Írak, þó eitthvað um 500 þúsund, flestir í litlum, afskekktum þorpum. Ásamt því að verða fyrir pyntingum, kynferðisglæpum og öðru ofbeldi hafa margir Jasídar dáið úr hungri og þorsta á flótta.
Nýlegar fréttir
Laust starf: Þjónustu- og skrifstofufulltrúi
SOS Barnaþorpin leita að drífandi einstaklingi sem brennur fyrir mannúðarmál, nýtir sín í mannlegum samskiptum og er töluglöggur.
Yfir 19 milljónir barna í Súdan ganga ekki í skóla
Framkvæmdastjóri SOS Barnaþorpanna í Súdan segir neyðarástandið í landinu eiga eftir að skilja eftir ör á sál landsmanna. Milljónir eru á flótta vegna borgarastríðs og daglega verða yfir hundrað manns...