Fréttayfirlit 7. október 2020

Tilkynning vegna sumarbréfs 2020

Tilkynning vegna sumarbréfs 2020


Kæru styrktarforeldrar og barnaþorpsvinir!

Það hefur reynst starfsfólki SOS Barnaþorpanna um heim allan mikil áskorun að senda sumarbréfin til ykkar á þessu ári. Vegna kórónuveirufaraldursins er póstþjónusta víða í lamasessi. Einhverjir styrktarðilar hafa fengið sumarbréfin en aðrir ekki.

Okkur finnst alltaf mikilvægt að þú hafir aðgang að fréttum og upplýsingum frá barnaþorpinu sem þú styrkir eða styrkir barn í. Því hafa þessi bréf nú verið gerð aðgengileg á rafrænu formi fyrir styrktaraðila á heimasíðu alþjóðasamtaka SOS Barnaþorpanna.

SMELLTU HÉR

Á heimskortinu smellir þú á viðeigandi heimsálfu og land og finnur þar þitt barnaþorp til að opna sumarbréfið til þín. ATHUGIРað í sumarbréfinu í ár eru almennar fréttir úr barnaþorpinu en einstaklingsmiðaðar fréttir af styrktarbarni þínu verða í jólabréfinu.

Kæru styrktarforeldrar! Covid-19 heimsfaraldurinn hefur líka önnur smávægileg áhrif á starfsemina sem snertir ykkur og því tengt minnum við á frétt á heimasíðu okkar frá 3. apríl sl.

Breytingar hafa smávægileg áhrif á styrktaraðila

Kærar þakkir fyrir fyrir að vera með okkur á þessum erfiðu tímum. Við vonum að þú njótir þess að lesa um hvernig stuðningur þinn skiptir máli - meira nú en nokkru sinni fyrr.

Með kærri kveðju,
starfsfólk SOS Barnaþorpanna á Íslandi

Nýlegar fréttir

Skrifstofa SOS lokuð milli jóla og nýárs
18. des. 2025 Almennar fréttir

Skrifstofa SOS lokuð milli jóla og nýárs

Skrifstofa SOS Barnaþorpanna verður lokuð milli jóla og nýárs og við opnum aftur 2. janúar. Þurfirðu að koma á framfæri erindi til okkar bendum við á netfangið sos@sos.is og við svörum þér strax og sk...

Nýtt SOS blað komið út
15. des. 2025 Almennar fréttir

Nýtt SOS blað komið út

Nýtt SOS blað kom út nú í desember og er það aðgengilegt öllum hér á heimasíðunni okkar. Forsíðuviðtalið er við Ambiku sem ólst upp í SOS barnaþorpi á Indlandi og komst í fréttir á Íslandi í sumar. Hé...