Fréttayfirlit 31. ágúst 2026

Svala er nýr fjármálastjóri SOS

Svala er nýr fjármálastjóri SOS

Svala Þyri Garðarsdóttir hefur verið ráðin fjármálastjóri SOS Barnaþorpanna á Íslandi og hóf störf hjá okkur í ágúst. Svala er fædd árið 1982, hún er viðsktiptafræðingur með MSc í reikningshaldi og endurskoðun. Hún starfaði áður hjá Vegagerðinni síðan 2015 og sinnti þar ýmsum störfum eins og t.d. aðalbókari og verkefnastjóri umbótaverkefnis á rekstrardeild og nú síðast sem verkefnastjóri bókhalds.

„Það er mér mikill heiður að hafa verið valin til að taka við starfi fjármálastjóra hjá SOS Barnaþorpunum á Íslandi. Það eru forréttindi að fá að leggja mitt af mörkum til starfs sem hefur raunveruleg áhrif á líf barna og fjölskyldna. Ég hlakka til að takast á við öll verkefnin sem fram undan eru,“ segir Svala.

Á þriðja tug umsókna bárust um starfið frá mörgum mjög frambærilegum einstaklingum sem erfitt var að velja úr og þakka SOS Barnaþorpin öllum sem sýndu ághuga. Svala tekur við starfi fjármálastjóra af Rakel Lind Hauksdóttur sem skipti um starfsvettfang.

Nýlegar fréttir

Gleðitár flæddu þegar Hafdís og Ambika hittust loksins
5. okt. 2026 Almennar fréttir

Gleðitár flæddu þegar Hafdís og Ambika hittust loksins

Tilfinningaþrungin stund var á skrifstofu SOS Barnaþorpanna á Íslandi og gleðitárin flæddu þegar Ambika Sharma og Guðrún Hafdís Karlsdóttir hittust loks, 33 árum eftir að Hafdís gerðist styrktarforeld...

Svona tuttugufaldast framlagið þitt
2. okt. 2026 Fjölskylduvinir

Svona tuttugufaldast framlagið þitt

Þegar þú gefur fjárframlög til góðgerðarmála verður til það sem kallað er félagsleg arðsemi af framlögunum þínum. Í skýrslunni 75 Years Of Impact sem gerð var í tilefni af 75 ára afmæli SOS Barnaþorpa...