Skemmdir hjá SOS í Úkraínu
Skrifstofa SOS Barnaþorpanna í Kænugarði í Úkraínu varð fyrir skemmdum sl. nótt þegar Rússar létu sprengjum rigna yfir borgina. Starfsfólk er óhult.
Eins og fram hefur komið í fréttum var um stórfelldar eldflauga- og drónaárásir að ræða. Auk mannfalls urðu miklar skemmdir á byggingum.
Þannig urðu m.a. skemmdir á skrifstofu SOS Barnaþorpanna í höfuðborginni. Rúður brotnuðu, hurðir fóru af hjörum og fleiri skemmdir urðu. Er þetta ekki í fyrsta skipti sem skemmdir verða á byggingunni vegna árása Rússa. Engan starfsmann SOS Barnaþorpanna sakaði í árásinni en starfsfólk hefur verið að hreinsa upp og lagfæra í allan dag.
Nýlegar fréttir
SOS Barnaþorpin styrkja starf fyrir fósturbörn á Íslandi
SOS Barnaþorpin hafa ráðstafað einni milljón króna af erfðagjöf Baldvsins Leifssonar í styrk til Félags fósturforeldra á Íslandi. Tilgangur styrksins er að efla starf félagsins í þágu fósturbarna hér ...
Gleðitár flæddu þegar Hafdís og Ambika hittust loksins
Tilfinningaþrungin stund var á skrifstofu SOS Barnaþorpanna á Íslandi og gleðitárin flæddu þegar Ambika Sharma og Guðrún Hafdís Karlsdóttir hittust loks, 33 árum eftir að Hafdís gerðist styrktarforeld...