Samburu undirstrikar mikilvægi styrktarforeldra
Við þökkum kærlega fyrir ánægjulega kvöldstund með styrktaraðilum SOS Barnaþorpanna á Íslandi og Keníamanninum Samburu Wa-Shiko á Grand hóteli sl. mánudagskvöld. Við erum ánægð með hversu margir mættu og höfðu áhuga á að kynnast Samburu og lífinu í SOS barnaþorpi.
Saga Samburu er mjög merkileg. Hann er ljóslifandi dæmi um barn í neyð sem fékk tækifæri hjá SOS Barnaþorpunum og hefur náð mög langt í lífinu. Hann missti foreldra sína þegar hann var 2 ára og ólst upp í SOS barnaþorpinu í Mombasa í Kenía.
Hann fékk margar áhugaverðar spurningar frá fólkinu í salnum og meðal þess sem fram kom var að styrktarforeldrar skipti börnin miklu máli í SOS barnaþorpunum. Sjálfur átti hann styrktarforeldra frá Þýskalandi og Noregi og hann heldur enn miklum og góðum tengslum
við konu í Þýskalandi sem var styrktarforeldri hans á sínum tíma. „Hún er guðmóðir mín," sagði Samburu.
Hann segir uppeldi sitt í barnaþorpinu hafa verið eins eðlilegt hann geti ímyndað sér og hann er í stöðugu sambandi við SOS móður sína og systkini sem hann ólst upp með.
SOS-barn á framabraut
Eftir að hafa hlotið góða menntun starfaði Samburu fyrir fjölda stofnana á vegum Sameinuðu þjóðanna og er í dag yfirráðgjafi hjá Gates foundation. (Senior advisor) Hann er sérfræðingur á sviði þróunaraðstoðar og hefur m.a. unnið fyrir Alþjóða efnahagsráðið, World Economic Forum.
Samburu fannst frábært að hitta íslenska styrktaraðila SOS og hann segir að þessi heimsókn hans til landsins hafi gefið honum mikið.

Nýlegar fréttir
Ný fjölskylduefling í Malaví nær til 1200 barna í 300 fjölskyldum
Nú í vikunni hófst formlega nýtt verkefni í fjölskyldueflingu í Malaví sem er styrkt af Íslendingum með stuðningi SOS fjölskylduvina og Utanríkisráðuneytisins. Verkefnið er til þriggja ára og mun ná t...
Fjögur ár af stríði í Úkraínu: Börn bíða enn eftir öryggi og stöðugleika
Þegar Úkraína minnist fjögurra ára frá upphafi allsherjarinnrásar Rússa halda börn víðs vegar um landið áfram að alast upp við loftárásarviðvaranir, flótta, rafmagnsleysi og óvissu um framtíðina. Fyri...