Fréttayfirlit 13. september 2018

Rúmar tvær milljónir í neyðaraðstoð til Laos

SOS Barnaþorpin á Íslandi hafa sent 2,25 milljónir króna (20,000 USD) til hjálpar börnum á flóðasvæðum í Laos í Suðaustur-Asíu. Þar brast stór stífla 23. júlí sl. með þeim afleiðingum að 36 létu lífið og 98 er enn saknað. Flóð vegna hamfaranna og monsún-rigninga flæddu yfir 13 þorp og höfðu áhrif á líf þrettán þúsunda. Um sjö þúsund manns í sex þorpum misstu heimili sín en hundruð heimila eyðilögðust á Sanamxay svæðinu.

SOS Barnaþorpin voru ein fyrstu hjálparsamtökin í heiminum til að bregðast við neyðinni sem skapaðist af flóðunum. Samtökin eru enn að störfum á svæðinu nú nærri tveimur mánuðum eftir að hörmungarnar dundu yfir. Samtökin útvega mat og aðstoða hundruð barna sem eru á vergangi ásamt fjölskyldum sínum. Þrettán skólar eyðilögðust í hamförunum.

Laos_ERP_Sanamxay district_SOS Laos_40.JPG

Fleiri börn á hverjum degi

„Það koma alltaf fleiri og fleiri börn til okkar á hverjum degi. Yfir tvo hundruð börn koma daglega á umsjónarsvæðin okkar þar sem við höldum við uppi ýmissi starfsemi fyrir börnin eins og afþreyingu og kennslu. Við höfum verið að færa til kennara úr öðrum verkefnum okkar og koma á kennslu hérna.“ segir Soumata Dengchampa, framkvæmdastjóri SOS Barnaþorpanna í Laos. Hann bendir jafnframt á að yfir 30 ungmenni úr öðrum SOS barnaþorpum hafi boðið sig fram í sjálfboðavinnu til að hjálpa.

Dýrmæt sérþekking hjá SOS

Shubha Murthi, aðgerðarstjóri SOS Barnaþorpanna segir að sérþekking innan SOS og snör viðbrögð hafi skipt miklu máli. „Við náðum að bregðast hratt við þessum hryllilega harmleik. Þarna munaði um sérþekkingu sem við öðluðumst vegna jarðskjálftanna í Nepal árið 2015. SOS Barnaþorpin þar í landi endurguldu nú aðstoð sem þeim barst fyrir þremur árum og sendu mannafla til okkar. Þetta undirstrikar að samtökin eru eitt stórt lið sem hjálpast að.“

Nýlegar fréttir

Börnin aftur í skóla eftir átta mánaða hlé vegna stríðsins
25. júl. 2024 Almennar fréttir

Börnin aftur í skóla eftir átta mánaða hlé vegna stríðsins

Börnin 68 sem flutt voru frá SOS barnaþorpinu í Rafah á Gaza til barnaþorpsins í Bethlehem á Vesturbakkanum í mars sl. eru komin aftur í skóla. Vegna stríðsins féll skólaganga þeirra niður í átta mánu...

Tveir Íslendingar mega styrkja sama barnið
3. júl. 2024 Almennar fréttir

Tveir Íslendingar mega styrkja sama barnið

Vegna aukinnar þarfar á stuðningi við börn í SOS barnaþorpum hefur sú breyting nú tekið gildi að tveir Íslendingar mega styrkja sama barnið. Að meðaltali eru um fimm til sex SOS-foreldrar um hvert sty...