Fréttayfirlit 15. febrúar 2024

SOS barnaþorpið í Rafah ekki lengur öruggt og flutningur undirbúinn

SOS barnaþorpið í Rafah ekki lengur öruggt og flutningur undirbúinn

Ástandið í SOS barnaþorpinu í borginni Rafah í Palestínu verður sífellt viðkvæmara og er nú ekki lengur talið öruggt. Ísraelsher hefur hafið árásir á borgina og undirbýr rýmingaráætlanir fyrir almenna borgara vegna yfirvofandi frekari árása. Þetta hefur bein áhrif á starfsemina í SOS barnaþorpinu í Rafah þar sem búa núna 76 börn og ungmenni auk starfsfólks.

Starfsfólk SOS á Gaza undirbýr mögulegan flutning án þess að fyrir liggi hentugur áfangastaður. Enginn þeirra staða sem skoðaðir hafa verið uppfyllir lágmarkskröfur til öryggis og barnaverndar. Það virðist komið að ögurstundu og ljóst er að starfsfólk okkar stendur stendur frammi fyrir erfiðum ákvörðunum. Það er nú með aðstoð alþjóðaskrifstofu SOS að kanna alla mögulega staði til að flytja starfsemina á.

Þessi mynd er tekin sl. laugardag, 10. febrúar, út fyrir vegg SOS barnaþorpsins í Rafah. Þessi mynd er tekin sl. laugardag, 10. febrúar, út fyrir vegg SOS barnaþorpsins í Rafah.

SOS Barnaþorpin hafa starfað fyrir fylgdarlaus börn og fátækar barnafjölskyldur í Palestínu síðan 1968. Starfsfólk okkar þar þekkir því aðstæður vel og þarna eru allir helstu innviðir til staðar fyrir heilbrigt uppeldi barna. Þessu er nú teflt í hættu en SOS Barnaþorpin gera allt sem í valdi stamtakanna stendur til að tryggja öryggi barnanna.

95 Íslendingar styrkja börnin í SOS barnaþorpinu í Rafah sem SOS-foreldrar, mánaðarlegir styrktaraðilar. Við birtum frekari upplýsingar hér á heimasíðunni þegar þær berast frá okkar fólki í Palestínu eða á alþjóðaskrifstofu SOS í Austurríki.

SOS Barnaþorpin á Íslandi minna jafnframt á að neyðarsöfnun stendur yfir vegna aðgerða SOS í Palestínu.

SOS barnaþorpið á Gaza er í borginni Rafah við landamærin að Egyptalandi. SOS barnaþorpið á Gaza er í borginni Rafah við landamærin að Egyptalandi.

Nýlegar fréttir

Börnin aftur í skóla eftir átta mánaða hlé vegna stríðsins
25. júl. 2024 Almennar fréttir

Börnin aftur í skóla eftir átta mánaða hlé vegna stríðsins

Börnin 68 sem flutt voru frá SOS barnaþorpinu í Rafah á Gaza til barnaþorpsins í Bethlehem á Vesturbakkanum í mars sl. eru komin aftur í skóla. Vegna stríðsins féll skólaganga þeirra niður í átta mánu...

Tveir Íslendingar mega styrkja sama barnið
3. júl. 2024 Almennar fréttir

Tveir Íslendingar mega styrkja sama barnið

Vegna aukinnar þarfar á stuðningi við börn í SOS barnaþorpum hefur sú breyting nú tekið gildi að tveir Íslendingar mega styrkja sama barnið. Að meðaltali eru um fimm til sex SOS-foreldrar um hvert sty...