Ólík úrræði fyrir börn
SOS Barnaþorpin hafa þróað starf sitt í gegnum árin með það í huga að hjálpa sem flestum börnum á sem bestan hátt. Samtökin leggja mikla áherslu á aðstoð við foreldralaus börn en einnig þau sem eru í hættu á að verða það.
Þar sem samtökin starfa í 134 löndum er mikilvægt að vera sveigjanleg en þó einnig staðföst í þeim ólíku nálgunum sem samtökin standa frammi fyrir þegar kemur að umönnun barna. Barnaþorpin eru þó grunnstarfsemi samtakanna og í dag búa yfir 85 þúsund börn í barnaþorpum um heim allan.
En hver sem nálgunin er setja SOS Barnaþorpin hagsmuni barnanna alltaf í forgang og hvert tilvik er metið fyrir sig. Þau úrræði sem SOS Barnaþorpin eru með fyrir börn sem þurfa á tímabundinni eða langtíma umönnun að halda eru eftirfarandi:
Barnaþorp: Börn búa í fjölskyldum í barnaþorpum. Í hverri fjölskyldu er SOS foreldri og fjögur til tíu börn og búa þau saman á heimili. Um er að ræða einingu sem líkist hefðbundinni fjölskyldu að öllu leyti. Í dag búa yfir 85 þúsund börn í SOS Barnaþorpum um allan heim.
Fósturheimili: Þetta úrræði er algengt í löndum þar sem SOS Barnaþorpin hafa stigið inn í fósturkerfið, líkt og í Evrópu. Stundum er það lögum samkvæmt að börn þurfa að vera í fóstri og í þeim tilvikum verða SOS foreldrarnir fósturforeldrar barnanna. Í öðrum tilvikum þjálfa samtökin fósturforeldra á vegum ríkisins, útvega heimili fyrir fjölskyldurnar og fleira, allt í þeim tilgangi að börnin fái gott heimili.
Tímabundin heimili: Börn sem munu sameinast fjölskyldum sínum eða á leið í önnur úrræði (t.d. SOS Barnaþorp) fá tímabundið heimili hjá SOS.
Neyðarskýli: Tímabundið úrræði sem samtökin reka þar sem neyðaraðstoð er í gangi. Um er að ræða afar mikilvægt úrræði, t.d. í stríðshrjáðum löndum.
Heimili fyrir móðir og börn: Tímabundið úrræði þar sem mæður geta búið með börn sín og fengið viðeigandi aðstoð.
Fjölskylduefling: Börn búa hjá líffræðilegri fjölskyldu en fá aðstoð frá SOS Barnaþorpunum.
Nýlegar fréttir

855 krónur af hverju þúsund króna framlagi renna í hjálparstarfið
Ársskýrsla SOS Barnaþorpanna fyrir árið 2024 hefur nú verið birt eftir aðalfund samtakanna 19. maí sl. Þar kemur m.a. fram að hlutfall rekstrarkostnaðar er með því allra lægsta sem gerist eða aðeins 1...

23 milljónum króna af erfðagjöf ráðstafað til háskólamenntunar
SOS Barnaþorpin á Íslandi hafa ráðstafað 23 milljónum króna af erfðagjöf til háskólamenntunar ungmenna í Afríku, nánar tiltekið í Rúanda. Ráðstöfunin er samkvæmt óskum arfleifanda, Baldvins Leifssonar...