Fréttayfirlit 25. febrúar 2022

Neyðarsöfnun fyrir Úkraínu

Neyðarsöfnun fyrir Úkraínu

SOS Barnaþorpin á Íslandi hófu í morgun neyðarsöfnun fyrir börn og fjölskyldur þeirra sem eiga um sárt að binda vegna stríðsátakanna í Úkraínu. Stjórn SOS á Íslandi hefur ákveðið að leggja til 5 milljónir króna í neyðaraðstoð til SOS í Úkraínu.

Ljóst er að SOS Barnaþorpin í Úkraínu munu þurfa mikla aðstoð á næstunni og eru landssamtök SOS víða um heim að undirbúa söfnun. Hjálparstarfsemi SOS í Úkraínu er mjög víðtæk og nær til um um 2.300 einstaklinga, allt í þágu barna og viðbúið er að sú tala muni hækka allverulega á næstu dögum. Áætlað er að á þriðja milljón Úkraínumanna muni leggja á flótta eða verða á vergangi í heimalandi sínu.

Starfsfólk í áfalli

50 Íslendingar eru SOS-foreldrar barna í Úkraínu en þar eru um 150 börn og ungmenni í umsjá SOS. Þau búa ýmist með SOS fjölskyldum sínum í barnaþorpinu í Brovary eða hjá fósturfjölskyldum á vegum SOS. Meðal fjölda áskoranna sem stjórnendur SOS í Úkraínu eru að fást við er að veita starfsfólki áfallahjálp því margir eru í losti.

Barnaþorp rýmt

Barnaþorpið í Brovary hefur verið rýmt og 99 börn og fósturforeldrar þeirra í Luhanks héraði í austurhluta landsins hafa verið flutt um set til vestur Úkraínu. Það var gert til að tryggja öryggi þeirra og draga úr hættunni á að þau upplifi ótta og kvíða. Þrjár skrifstofur SOS eru í Luhansk. Það eru 300 fósturfjölskyldur sem leggja allt sitt traust á SOS Banaþorpin og hafa gert sl. 8 ár. Landsskrifstofa SOS í Kænugarði er starfhæf. 

Rússar sýna samstöðu

„Við upplifum okkur algerlega hjálparlaus. Forgangsmál okkar núna er að vernda eins mörg börn og við getum," sagði Serhii Lukashov, framkvæmdastjóri SOS Barnaþorpanna í Úkraínu á fundi með öllum landssamtökum SOS.

SOS Barnaþorpin starfa óháð trú og stjórnmálum og það endurspeglast í samskiptum SOS í þessum löndum. „Ég er í nánu sambandi við SOS Barnaþorpin í Rússlandi og Hvíta-Rússlandi. Við erum í sama liði - í liði með börnunum. Við munum halda áfram að vernda börnin fyrir hryllingi stríðsins," sagði Serhii Lukashov. 

Nýlegar fréttir

10 milljónir króna til Venesúela - „Við höfum aðeins séð upphaf þessara hörmunga“
16. júl. 2026 Almennar fréttir

10 milljónir króna til Venesúela - „Við höfum aðeins séð upphaf þessara hörmunga“

„Við höfum aðeins séð upphaf þessara hörmunga. Nú fyrst munum við sjá raunverulegu afleiðingarnar,“ segir Ilvania Martins, framkvæmdastjóri SOS Barnaþorpanna í Venesúela eftir jarðskjálftana sem riðu ...

Skemmdir hjá SOS í Úkraínu
2. júl. 2026 Almennar fréttir

Skemmdir hjá SOS í Úkraínu

Skrifstofa SOS Barnaþorpanna í Kænugarði í Úkraínu varð fyrir skemmdum sl. nótt þegar Rússar létu sprengjum rigna yfir borgina. Starfsfólk er óhult.