Fréttayfirlit 1. júlí 2021

Milljarðasamstarf SOS Barnaþorpanna og Heimstaden

Í dag, 1. júlí, hefst formlega metnaðarfullt samstarf SOS Barnaþorpanna og evrópska íbúðaleigufyrirtækisins Heimstaden sem mun tryggja örugg heimili og traustan grunn fyrir barnafjölskyldur um allan heim. Samstarfið gerir SOS m.a. kleift að styrkja verkefni í þágu barna á Íslandi í fyrsta sinn.

Verkefnisteymi SOS og Heimstaden á Íslandi. Vinstra megin frá Heimstaden; Gauti Reynisson, framkvæmdastjóri, Margrét Guðjónsdóttir, forstöðumaður fjármála og mannauðsstjóri og Lóa Bára Magnúsdóttir, markaðsstjóri. Hægra megin, frá SOS, f.v. Rakel Lind Hauksdóttir, fjármála- og fjáröflunarstjóri, Hans Steinar Bjarnason, upplýsingafulltrúi og Ragnar Schram, framkvæmdastjóri. Verkefnisteymi SOS og Heimstaden á Íslandi. Vinstra megin frá Heimstaden; Gauti Reynisson, framkvæmdastjóri, Margrét Guðjónsdóttir, forstöðumaður fjármála og mannauðsstjóri og Lóa Bára Magnúsdóttir, markaðsstjóri. Hægra megin, frá SOS, f.v. Rakel Lind Hauksdóttir, fjármála- og fjáröflunarstjóri, Hans Steinar Bjarnason, upplýsingafulltrúi og Ragnar Schram, framkvæmdastjóri.

A Home For a Home - 100 evrur fyrir hverja íbúð

Samstarfið, sem gengur undir nafninu “A Home for a Home”, mun á fyrsta ári þess styrkja yfir 30 verkefni SOS Barnaþorpanna í 19 löndum, þar á meðal fjölskyldueflingu, umönnun barna og atvinnustuðning við ungmenni. Fyrir hvert heimili í íbúð Heimstaden, gefur fyrirtækið 100 evrur til SOS Barnaþorpanna árlega. Í dag á Heimstaden yfir 110.000 íbúðir víðsvegar um Evrópu, og eftir því sem fyrirtækið vex mun framlagið hækka. Heimstaden styrkir SOS Barnaþorpin á heimsvísu þannig um rúmlega 1,6 milljarða króna á fyrsta samstarfsárinu. Fyrir íslenska eignasafnið nemur styrkurinn 24 milljónum króna á ársgrundvelli.

Ragnar Schram og Gauti Reynisson. Ragnar Schram og Gauti Reynisson.

„Ekkert er mikilvægara en að geta veitt börnum örugga og hamingjusama æsku. Við höfum yfir 70 ára farsæla reynslu af því að efla fjölskyldur og vera til staðar fyrir börn sem hafa misst foreldraumsjón. Þetta samstarf með Heimstaden mun hafa veruleg áhrif á líf fjölmargra og jákvæð keðjuverkandi áhrif á komandi kynslóðir,“

segir Ragnar Schram, framkvæmdastjóri SOS Barnaþorpanna á Íslandi.

Patrick Hall, forstjóri Heimstaden. Patrick Hall, forstjóri Heimstaden.

Miklu meira en fjárframlag

Markmið SOS Barnaþorpanna og Heimstaden er að setja ný viðmið fyrir samstarf fyrirtækja og góðgerðafélaga og að finna nýjar samstarfsleiðir. Þessu tengt má nefna verkefni í Gíneu-Bissá þar sem SOS Barnaþorpin eru að þróa næstu kynslóð barnaþorpa. Með því að nýta sérþekkingu Heimstaden á fasteignaumsjón og sjálfbærni, mun þetta nýja barnaþorp verða sjálfbær miðstöð og veita hreina orku og stafrænt aðgengi, starfsþjálfun og neyðarhúsnæði fyrir börn og ungmenni í samfélaginu.

„Þetta samstarf er svo miklu meira en fjárframlag. Með “A Home for a Home” tökum við samfélagsstefnu okkar upp á næsta stig og teygjum stefnu okkar um að skapa vinaleg heimili, til barna og fjölskyldna um allan heim. Við sjáum stórkostleg tækifæri í því að nýta sérþekkingu okkar og virkja starfsfólk okkar, samstarfsaðila og jafnvel íbúa í þessari spennandi vegferð,” segir Patrick Hall, forstjóri Heimstaden.

Fyrsta íslenska verkefni SOS Barnaþorpanna

Auk þess að styrkja fjölda alþjóðaverkefna, styrkir “A Home for a Home” einnig verkefni í nærumhverfinu. Í nánu samstarfi við SOS Barnaþorpin í starfslöndum Heimstaden hafa verkefnahópar sett af stað verkefni til að styðja við börn og fjölskyldur á staðnum.

„Ísland er eitt af nokkrum aðildarlöndum SOS Barnaþorpanna sem sinna eingöngu fjáröflun og þjónustu við styrktaraðila en hafa ekki starfrækt innanlandsverkefni. Þetta er því í fyrsta sinn sem SOS á Íslandi getur tekið þátt í verkefni sem varðar velferð barna hér á landi. Það þykir okkur afar ánægjulegt,” segir Rakel Lind Hauksdóttir, fjármála- og fjáröflunarstjóri SOS Barnaþorpanna á Íslandi.

Frá Ásbrú þar sem SOS styrkir í fyrsta sinn verkefni í þágu barna á Íslandi. Frá Ásbrú þar sem SOS styrkir í fyrsta sinn verkefni í þágu barna á Íslandi.
Það hefur sterkt fyrirbyggjandi gildi að börn hafi afþreyingu í nærumhverfi sínu og vettvang til útivistar og að rækta vináttu. Gauti Reynisson

Stuðningur við börn á Ásbrúarsvæðinu

Í fyrstu verkefnum a Home for a Home hér á Íslandi er athyglinni beint að Ásbrúarsvæðinu á Reykjanesi, sem hefur fundið sterkt fyrir áhrifum heimsfaraldursins. Þar eru tvö verkefni sem hljóta forgang. Á Ásbrú er þörf fyrir fjölbreyttari afþreyingu fyrir börn og ungmenni í nærumhverfi sínu. “A Home for a Home” verkefnið mun afhenda Reykjanesbæ ærslabelg að gjöf, sem er fyrsta skref í byggingu nýs leikvallar, miðsvæðis í hverfinu.

„Markmiðið er að skapa vettvang sem styrkir félagslegt net barna og ungmenna og stuðlar að þroska og heilbrigði. Það hefur sterkt fyrirbyggjandi gildi að börn hafi afþreyingu í nærumhverfi sínu og vettvang til útivistar og að rækta vináttu,” segir Gauti Reynisson, framkvæmdastjóri Heimstaden á Íslandi.

Barbara er SOS móðir í barnaþorpi. Barbara er SOS móðir í barnaþorpi.

Að auki snýr annað verkefni að stuðningi við sérkennslu í leikskólanum Skógarási á Ásbrú. Verkefnið mun styrkja leikskólann um tækjabúnað til sérkennslunota og þannig efla úrræðin sem í boði eru. Snemmtæk íhlutun er gríðarlega mikilvæg til að efla færni barna með sérþarfir og með þessu fá kennarar búnað sem styður verulega við starf þeirra og getur haft jákvæð áhrif á þroska barnanna.

Við hlökkum til að halda áfram að vinna að verkefnum tengdum "A Home for a Home" Þetta er aðeins byrjunin og við hlökkum til að sjá samstarfið vaxa eftir því sem eignasafn okkar stækkar.“ segir Gauti að lokum.

Nýlegar fréttir

Framboð til stjórnar SOS Barnaþorpanna
12. apr. 2024 Almennar fréttir

Framboð til stjórnar SOS Barnaþorpanna

Aðalfundur samtakanna verður haldinn mánudaginn 13. maí kl. 17:30 í safnaðarheimili Kópavogskirkju. Tilnefningarnefnd SOS Barnaþorpanna óskar nú eftir tillögum um framboð til stjórnar.

Að gefnu tilefni vegna Heru Bjarkar
4. apr. 2024 Almennar fréttir

Að gefnu tilefni vegna Heru Bjarkar

Nokkuð hefur verið um það undanfarið að SOS Barnaþorpin á Íslandi fái skilaboð frá fólki sem lýsir vanþóknun sinni á samstarfi samtakanna við söngkonuna Heru Björk Þórhallsdóttur og þess jafnvel krafi...