Lítil kraftaverk
Huginn Þór Grétarsson er höfundur barnabókarinnar Lítil kraftaverk. Bókin er tileinkuð hjálparsamtökum sem aðstoða börn um víða veröld. „Ekki fæðast allir með sömu tækifæri til að afla sér lífsviðurværis og matar og nauðsynlegt er að reyna að aðstoða fátækari þjóðir við að koma undir sig fótunum,“ segir í bókinni.
Lítil kraftaverk fjallar um drenginn Manga sem ferðast til Úganda, Perú og Indónesíu með fjölskyldu sinni og heimsækir þar SOS Barnaþorp en fjölskylda Manga er styrktarforeldri þriggja SOS barna í þeim þorpum.
Ásamt því að hitta styrktarbörnin sem hann hefur skrifast á við í gegnum árin, fræðist hann um aðra menningarheima, aðrar venjur og lífið í SOS Barnaþorpum.
Lítil kraftaverk er frábær jólagjöf fyrir yngri kynslóðina og er fáanleg á skrifstofu SOS Barnaþorpanna. Þá er einnig hægt að kaupa bókina í vefverslun SOS eða panta eintak í síma 564-2910 og fá sent heim. Bókin kostar 2000 krónur og sé hún keypt hjá SOS (ekki í verslunum) rennur helmingur upphæðarinnar til SOS Barnaþorpanna á Íslandi.
Þess má geta að SOS Barnaþorpin komu ekki að útgáfu bókarinnar á neinn hátt.
Nýlegar fréttir
SOS Barnaþorpin styrkja starf fyrir fósturbörn á Íslandi
SOS Barnaþorpin hafa ráðstafað einni milljón króna af erfðagjöf Baldvsins Leifssonar í styrk til Félags fósturforeldra á Íslandi. Tilgangur styrksins er að efla starf félagsins í þágu fósturbarna hér ...
Gleðitár flæddu þegar Hafdís og Ambika hittust loksins
Tilfinningaþrungin stund var á skrifstofu SOS Barnaþorpanna á Íslandi og gleðitárin flæddu þegar Ambika Sharma og Guðrún Hafdís Karlsdóttir hittust loks, 33 árum eftir að Hafdís gerðist styrktarforeld...