Fréttayfirlit 4. júní 2019

Gefðu vatnshreinsitæki

Komið er í sölu í vefverslun okkar vatnshreinsitækið WADI sem við útvegum barnafjölskyldum í Fjölskyldueflingu okkar í Eþíópíu. Þegar þú kaupir vatnshreinsitækið færðu sent þakkarbréf sem staðfestir að þú hafir gefið eitt slíkt tæki til einnar fjölskyldu.

Vatnshreinstækið nemur styrk UV sólargeislanna sem drepa sýkla og örverur. Ef plastflaska full af vatni er látin standa úti í sólinni og tækið við hliðina á, gefur broskarl til kynna að vatnið sé orðið drykkjarhæft. Svo lengi sem fýlukarlinn er á tækinu, er vatnið enn ódrykkjarhæft. Með þessu móti er hægt að sporna við sjúkdómum sem orsakast vegna skítugs drykkjarvatns.

SOS Barnaþorpin á Íslandi vinna verkefnið í samvinnu við yfirvöld á Tulu-Moye svæðinu og heimafólk. Markmið þess er að auka hæfni og getu þessara fjölskyldna til að standa á eigin fótum og mæta þörfum barnanna svo velferð þeirra sé tryggð til framtíðar. Skjólstæðingar verkefnisins fá aðgang að heilsugæslu, mataraðstoð, menntun og fræðslu ásamt því að þeir geta fengið vaxtalág örlán frá SOS Barnaþorpunum.

Meðfylgjandi myndir voru teknar í febrúar sl. í þorpunum Iteya og Tero Moye þar sem fjölskyldurnar í verkefninu okkar búa. Þar kemur tækið að góðum notum.

Vatnshreinsitæki2.JPG

Vatnshreinsitæki1.JPG

Nýlegar fréttir

Starf SOS heldur áfram á Gaza við erfiðar aðstæður
28. ágú. 2026 Almennar fréttir

Starf SOS heldur áfram á Gaza við erfiðar aðstæður

Starf SOS Barnaþorpanna heldur áfram á Gaza í Palestínu við erfiðar aðstæður. Maha Lolas, tengiliður styrktaraðila hjá SOS í Palestínu, er í nánum samskiptum við starfsfólkið á Gaza og hún segir okkur...

Börn í neyð eftir mannskæð skyndiflóð í Nepal
27. ágú. 2026 Almennar fréttir

Börn í neyð eftir mannskæð skyndiflóð í Nepal

Mikil neyð ríkir í Nepal eftir mannskæð skyndiflóð sem hafa valdið gríðarlegri eyðileggingu. Öll börn og fjölskyldur í verkefnum SOS eru heil á húfi. Um 330 börn í SOS barnaþorpum í Nepal eiga íslensk...