Fréttayfirlit 15. júní 2026

Fleiri lönd leggja niður peningagjafir til styrktarbarna

Fleiri lönd leggja niður peningagjafir til styrktarbarna

Í mörg ár hafa SOS-foreldrar geta gefið styrktarbörnum sínum peningagjafir inn á framtíðarreikning sem börnin leysa út þegar þau flytja á brott úr barnaþorpinu og fara að standa á eigin fótum.

Þessar peningagjafir hafa alltaf runnið óskiptar til barnanna og enginn umsýslukostnaður dregist frá. Þetta hafa fjölmargir SOS foreldrar á Íslandi nýtt sér síðustu áratugi og í raun stendur Ísland einna fremst í flokki meðal aðildarlanda SOS þegar kemur að peningagjöfum til barnanna.

Nú ríkir óvissa með framtíð slíkra gjafa til barnanna og hafa nokkur aðildarlönd SOS Barnaþorpanna neyðst til að hætta að taka við slíkum greiðslum. Regluverkið og umsýsla í kringum þessar gjafir hafa þyngst mjög í mörgum löndum og í ákveðnum tilvikum er slíkt fyrirkomulag beinlínis ekki í samræmi við landslög.

Frá og með 30. júní 2026 verður lokað á peningagjafir til styrktarbarna í Jórdaníu, Úsbekistan og Eistlands.

Áður höfðu eftirfarandi lönd hætt að taka við peningagjöfum til styrktarbarna

  • Tíbet
  • Grikkland
  • Ungverjaland
  • Mongólía
  • Ísrael
  • Kína
  • Kongó
  • Litháen
  • Marokkó
  • Mið-Afríkulýðveldið
  • Súdan
  • Sýrland
  • Túnis
  • Kasakstan
  • Lettland

Áfram verður hægt að gefa peningagjafir til barnaþorpanna. Breytingin á aðeins við beinar peningagjafir til einstaklinga, þ.e.a.s. til barnanna.

Þessar breytingar hafa að öðru leyti engin áhrif á styrktarbörnin eða stuðning SOS foreldra við þau. Velferð barnanna og framfærsla eru áfram tryggð, þökk sé stuðningi SOS foreldra.

Þau börn sem eiga inni uppsafnaðar peningagjafir í löndum sem hætta að taka við slíkum gjöfum, fá sjóðinn að sjálfsögðu greiddan út þegar þau flytja á brott og fara að standa á eigin fótum.

SOS foreldrar geta áfram gefið peningagjafir til styrktarbarna sinna í öðrum löndum þar til annað verður ákveðið. Verði breytingar þar á munum við að sjálfsögðu tilkynna SOS foreldrum það í tölvupósti og á Mínum síðum hér á vefsíðunni okkar.

Þessi frétt var fyrst birt í desember 2025 en var uppfærð í júní 2026 eftir að Jórdanía, Úskbekistan og Eistland bættust við listann.

Nýlegar fréttir

30 ungmenni í Rúanda komin í háskólanám fyrir tilstilli erfðagjafar Baldvins
10. ágú. 2026 Erfðagjafir

30 ungmenni í Rúanda komin í háskólanám fyrir tilstilli erfðagjafar Baldvins

Alls hafa 30 ungmenni í Rúanda hafið háskólanám með stuðningi erfðagjafar sem SOS Barnaþorpin á Íslandi ráðstöfuðu hluta af árið 2025. Markmiðið er að gera 39 ungmennum, sem notið hafa stuðnings SOS, ...

Ísland styrkir aftur sumarbúðir fyrir stríðshrjáð börn í Úkraínu
6. ágú. 2026 Almennar fréttir

Ísland styrkir aftur sumarbúðir fyrir stríðshrjáð börn í Úkraínu

SOS Barnaþorpin á Íslandi hafa sent fjárstuðning til sumarbúða í Úkraínu fyrir börn sem hafa orðið fyrir alvarlegum áhrifum af stríðinu. Þar taka börnin þátt í fjölbreyttu starfi sem hjálpar þeim að v...