Fjölskylduefling SOS á Íslandi hafin á Filippseyjum
Tímamót voru á mánudaginn 1. apríl þegar nýja fjölskyldueflingarverkefnið okar á Filippseyjum hófst formlega. SOS á Íslandi fjármagnar verkefnið með stuðningi Utanríkisráðuneytisins sem lagði til rúmar 45 milljónir króna. Mótframlag SOS eru rúmar 11 milljónir króna og er það fjármagnað af styrktaraðilum SOS á Íslandi sem kallast SOS-fjölskylduvinir.
1800 börnum hjálpað
Verkefnið á Filippseyjum er til þriggja ára. Það nær til 1800 barna og ungmenna og snýst um að klæðskerasniðna aðstoð til barnafjölskyldna sem eiga erfitt með að mæta þörfum barnanna og börnin eiga á hættu að missa forsjá foreldra sinna. Eitt af hverjum 20 börnum á Filippseyjum hefur verið yfirgefið, er munaðarlaust eða vanrækt.
Hvað nú?
SOS á Íslandi hefur haft nokkra aðkomu að útfærslu verkefnisins, m.a. umfang þess og staðsetningar í samráði við heimamenn sem sjá þó um aðaláherslur og útfærslu þess. Með formlegu upphafi verkefnisins á mánudaginn hófst ferli ráðninga á starfsfólki, uppsetning skrifstofu og önnur skipulagning en skjólstæðingar hafa þegar verið valdir eftir mati fagfólks á svæðinu.
SOS Barnaþorpin á Íslandi fjármagna nú þrjú Fjölskyldueflingarverkefni en hin standa yfir í Eþíópíu og Perú.
Fjölskylduefling SOS Barnaþorpanna nær til heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna nr. 1, 2, 3, 4, 5, 6, 8 og 11. SOS Barnaþorpin uppfylla heimsmarkmið númer 1, 4, 8, 10 og 16 að fullu. Þar að auki uppfylla þau markmið númer 3,5 og 17 að hluta.
Nýlegar fréttir
Kylfingar úr Oddi styrkja nauðstödd börn í Súdan
Þúsundir Íslendinga hafa lagt neyðarsöfnunum SOS Barnaþorpanna lið á árinu með smærri og stærri framlögum. Nú í október barst rausnarlegt framlag frá félagsskap nokkurra kylfinga í Golfklúbbnum Oddi, ...
Sjáðu Eva Ruzu ræða við Sonam Gangsang um árin í SOS barnaþorpi
Íslenskum SOS-foreldrum gafst á dögunum tækifæri á að hitta Sonam Gangsang frá Tíbet sem ólst upp í barnaþorpi. Eva Ruza ræddi við Sonam og birtum við hér upptöku frá viðburðinum.