Fréttayfirlit 5. maí 2026

SOS Barnaþorpin auglýsa eftir fjármálastjóra

SOS Barnaþorpin auglýsa eftir fjármálastjóra

SOS Barnaþorpin á Íslandi óska eftir að ráða öflugan fjármálastjóra til að stýra fjármálum félagsins. Fjármálastjóri ber heildarábyrgð á fjármálum, reikningshaldi og fjárreiðum auk þess að hafa virka aðkomu að stefnumótun og stjórnun félagsins.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Ábyrgð á fjármálastjórn, reikningshaldi og fjárreiðum félagsins
  • Umsjón með árshluta- og ársuppgjöri, gerð ársreikninga og fjárhagsáætlana
  • Greining, samantekt og miðlun fjárhagsupplýsinga til framkvæmdastjórnar, stjórnar og höfuðstöðva
  • Samskipti við endurskoðendur, fjármálastofnanir, systurfélög og höfuðstöðvar
  • Ábyrgð á lögboðnum skýrsluskilum, innra eftirliti og þátttaka í áhættustýringu
  • Yfirsýn yfir fjárfestingar og aðkoma að fjáröflun félagsins
  • Virk þátttaka í framkvæmdastjórn og samstarf við stjórn
  • Aðkoma að stafrænni þróun og rekstri upplýsingatæknikerfa

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Háskólapróf á sviði viðskipta, fjármála eða sambærilegra greina
  • Haldbær reynsla af reikningshaldi, uppgjörsvinnu og gerð ársreikninga
  • Mjög góð þekking og reynsla af Excel
  • Reynsla af greiningu og miðlun fjárhagsupplýsinga
  • Þekking og reynsla af fjárhags- og upplýsingakerfum er kostur
  • Leiðtogahæfileikar og framúrskarandi samskiptahæfni
  • Öguð og skipulögð vinnubrögð, drifkraftur og lausnamiðað hugarfar
  • Gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti

Um SOS Barnaþorpin

SOS Barnaþorpin eru alþjóðleg hjálparsamtök sem hafa séð mun­að­ar­laus­um og yf­ir­gefn­um börn­um um all­an heim fyr­ir fjöl­skyldu og heim­ili síð­an 1949. SOS Barna­þorp­in hafa beina um­sjá með um 70.000 börn­um og ung­menn­um all­an sól­ar­hring­inn. Auk þess sinna sam­tök­in forvarnarstarfi sem gengur út á að aðstoða barnafjölskyldur í sárafátækt til að standa á eigin fótum og nær það starf til yfir hálfrar milljónar barna, ungmenna og foreldra þeirra í yfir 100 löndum.

Hlut­verk sam­tak­anna á Ís­landi er fyrst og fremst að sinna fjár­öfl­un fyr­ir verk­efni syst­ur­sam­taka sinna í yfir 100 lönd­um og sinna upp­lýs­inga­gjöf til styrktarað­ila. SOS Barna­þorp­in á Ís­landi eru vinnu­stað­ur þar sem rík­ir heil­brigð menn­ing, gagn­kvæm virð­ing og góð­ur andi. Samtökin hafa verið Fyrirmyndarfyrirtæki VR undanfarin fjögur ár. Boðið er upp á góða vinnuaðstöðu þar sem viðkomandi fær tækifæri til að þróa og móta starfið. Auk þess er boðið upp á sveigjanleika í starfi þar sem tækifæri eru til símenntunar.

Umsóknarfrestur er til og með 11. maí 2026. Umsókn óskast fyllt út hjá Intellecta og þarf henni að fylgja starfsferilskrá og ítarlegt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir hæfni viðkomandi sem nýtist í starfi. Unnið er úr umsóknum jafn fljótt og þær berast. Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um starfið. Farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál og þeim svarað að ráðningu lokinni.
 
Nánari upplýsingar veitir Sigríður Svava Sandholt (sigridur@intellecta.is) í síma 511 1225.

Nýlegar fréttir

30 ungmenni í Rúanda komin í háskólanám fyrir tilstilli erfðagjafar Baldvins
10. ágú. 2026 Erfðagjafir

30 ungmenni í Rúanda komin í háskólanám fyrir tilstilli erfðagjafar Baldvins

Alls hafa 30 ungmenni í Rúanda hafið háskólanám með stuðningi erfðagjafar sem SOS Barnaþorpin á Íslandi ráðstöfuðu hluta af árið 2025. Markmiðið er að gera 39 ungmennum, sem notið hafa stuðnings SOS, ...

Ísland styrkir aftur sumarbúðir fyrir stríðshrjáð börn í Úkraínu
6. ágú. 2026 Almennar fréttir

Ísland styrkir aftur sumarbúðir fyrir stríðshrjáð börn í Úkraínu

SOS Barnaþorpin á Íslandi hafa sent fjárstuðning til sumarbúða í Úkraínu fyrir börn sem hafa orðið fyrir alvarlegum áhrifum af stríðinu. Þar taka börnin þátt í fjölbreyttu starfi sem hjálpar þeim að v...