Fréttayfirlit 23. október 2018

Dvalarheimili fyrir SOS mæður á eftirlaunum brátt tilbúið

Framkvæmdir nálgast nú lokastig við byggingu heimilis fyrir SOS mæður á eftirlaunum í Hojai á Indlandi sem til stendur að taka í notkun á næsta ári. Fyrir nokkrum árum arfleiddi Anna Kristín Ragnarsdóttir SOS Barnaþorpin að íbúð sinni á Spáni og var hluta af andvirðinu ráðstafað í byggingu þessa heimilis eða 10 milljónum króna. Kostnaður við bygginguna er um 27 milljónir króna.

Með þessu framlagi vill SOS á Íslandi stuðla að velferð þeirra fyrrverandi SOS mæðra sem þar fá heimili á efri árum sínum og sýna þeim mæðrum sem nú starfa við uppeldi barna í barnaþorpinu að þær þurfa ekki að hafa áhyggjur af húsnæðismálum eftir að þær hætta að vinna. Á þessu nýja heimili fá tíu konur herbergi ásamt sameiginlegu eldhúsi og setustofu. Hvert herbergi er 30 fermetrar og sameinleg aðstaða 90 fermetrar.

32 SOS barnaþorp eru á Indlandi og í þeim 4,526 munaðarlaus og yfirgefin börn í 443 SOS fjölskyldum. Fjölmargir Elliheimili3.pngÍslendingar styrkja börn í þessum þorpum og án SOS mæðra væru ekki til nein SOS barnaþorp.

Erfðagjafir algengar

Undanfarin ár hafa SOS Barnaþorpunum á Íslandi borist nokkrar erfðagjafir frá einstaklingum sem áttu það sameiginlegt að eiga ekki afkomendur eða maka á lífi. Þetta kjósa þeir að gera í stað þess að eignir þeirra og ævisparnaður renni til ríkissjóðs eftir þeirra dag en það á við um eignir þeirra sem ekki eiga lögerfingja og hafa ekki gert erfðaskrá. Þau eru ófá börnin í SOS barnaþorpunum sem hafa notið góðs af slíkum gjöfum í gegnum árin.

Bæklingur um erfðagjafir

Af þessu tilefni viljum við benda á bækling sem SOS Barnaþorpin á Íslandi hafa ásamt fleiri félagasamtökum gefið út um erfðagjafir.

Nýlegar fréttir

Börnin aftur í skóla eftir átta mánaða hlé vegna stríðsins
25. júl. 2024 Almennar fréttir

Börnin aftur í skóla eftir átta mánaða hlé vegna stríðsins

Börnin 68 sem flutt voru frá SOS barnaþorpinu í Rafah á Gaza til barnaþorpsins í Bethlehem á Vesturbakkanum í mars sl. eru komin aftur í skóla. Vegna stríðsins féll skólaganga þeirra niður í átta mánu...

Tveir Íslendingar mega styrkja sama barnið
3. júl. 2024 Almennar fréttir

Tveir Íslendingar mega styrkja sama barnið

Vegna aukinnar þarfar á stuðningi við börn í SOS barnaþorpum hefur sú breyting nú tekið gildi að tveir Íslendingar mega styrkja sama barnið. Að meðaltali eru um fimm til sex SOS-foreldrar um hvert sty...