Fréttayfirlit 18. maí 2019

Djúpt snortin eftir heimsókn í barnaþorp í Ísrael og Palestínu

Djúpt snortin eftir heimsókn í barnaþorp í Ísrael og Palestínu

Söngdívan Hera Björk Þórhallsdóttir er einn af velgjörðarsendiherrum SOS Barnaþorpanna á Íslandi. Hún var í Ísrael í vikunni í þeim erindagjörðum að skemmta á Eurovisionsamkomu í Tel Aviv en notaði tækifærið í leiðinni og heimsótti SOS barnaþorpin í Nazareth í Ísrael og Bethlehem í Palestínu. Hera er vægast sagt djúpt snortin eftir þessar heimsóknir og birti eftirfarandi færslu á Facebook.

Ég er svo að springa úr þakklæti og kærleika. Og dauðskammast mín um leið fyrir það hvað ég leyfi mér stundum að kvarta og kveina yfir allskonar sem engu máli skiptir.

Börnin okkar eru það sem skiptir öllu máli og við bara megum ekki gleyma því. Börnin og starfsfólkið í SOS barnaþorpunum í Palestínu og Ísrael snertu mig djúpt. Þarna fer fram svo mikil og góð vinna sem miðar að því að styrkja og styðja börn sem af allskyns hræðilegum og ólíkum ástæðum geta ekki verið hjá foreldrum sínum eða fjölskyldu og þurfa að leggja sig alfarið undir verndarvæng samtaka eins og SOS.

Þarna er stríð á báða bóga og börnin í báðum löndum þjást af þeim sökum. Börnin sjálf eru algerlega dásamleg og full af von. Þau hikuðu ekki við að henda sér í fangið á mér, sýndu mér stolt heimili sitt, umgengust SOS mómmu sína og annað starfsfólk af virðingu og væntumþykju, við bökuðum saman pizzu og sungum fyrir hvert annað…einstóm ást og gleði innan um allar hörnungarnar, áföllin og erfiðu staðreyndirnar sem þarna stara á mann úr öllum áttum.

Èg fèkk í kveðjugjöf mynd af hönd sem eitt hjartað gerði og undir myndinni stendur á arabísku “Höndin þín skilur eftir mark á heiminn”! Þeirra hendur og allra sem þarna starfa skilja klárlega eftir mark sitt í mínu hjarta og mínum heimi. Held ótrauð áfram að springa úr þakklæti og kærleika og hvet ykkur til að gera slíkt hið sama❤️

Hera tók lagið fyrir börnin eins og sjá má á meðfylgjandi myndskeiði

Nýlegar fréttir

Börnin aftur í skóla eftir átta mánaða hlé vegna stríðsins
25. júl. 2024 Almennar fréttir

Börnin aftur í skóla eftir átta mánaða hlé vegna stríðsins

Börnin 68 sem flutt voru frá SOS barnaþorpinu í Rafah á Gaza til barnaþorpsins í Bethlehem á Vesturbakkanum í mars sl. eru komin aftur í skóla. Vegna stríðsins féll skólaganga þeirra niður í átta mánu...

Tveir Íslendingar mega styrkja sama barnið
3. júl. 2024 Almennar fréttir

Tveir Íslendingar mega styrkja sama barnið

Vegna aukinnar þarfar á stuðningi við börn í SOS barnaþorpum hefur sú breyting nú tekið gildi að tveir Íslendingar mega styrkja sama barnið. Að meðaltali eru um fimm til sex SOS-foreldrar um hvert sty...